Pétur Þór knúsaður eftir uppboðið Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar 22. apríl 2008 15:58 „
Maður fór eiginlega bara í köku. Ég var afar þakklátur og hrærður," segir Pétur Þór Gunnarsson eigandi Gallerís Borgar, sem stóð um helgina fyrir fyrsta uppboði gallerísins í tíu ár á Hilton hóteli. Pétur stóð í málaferlum í tæp níu ár í Stóra málverkarfölsunarmálinu svokallaða, þar sem honum var gefið að sök að hafa falsað eða vísvitandi selt verk sem hann vissi að væru fölsuð. Hann hélt ávallt fram sakleysi sínu, og var að lokum sýknaður í Hæstarétti. Pétur vissi því ekki hvernig viðtökurnar yrðu á uppboðinu, en allar áhyggjur reyndust óþarfar. Fullt var út úr dyrum, og dynjandi lófatak tók við í lok uppboðsins, og var uppboðshaldarinn kysstur og knúsaður í bak og fyrir. Pétur segist aldrei hafa séð neitt þessu líkt á uppboði áður, og hann hafi verið afar hrærður. Hann hafi þó haldið andlitinu, en hugsað um leið hlýlega til æðri máttarvalda, og þakkað guði fyrir viðtökurnar. „Maður væri tilfinningalega daufur ef þetta hefði ekki áhrif á mann. Allur þessi velvilji og hlýja var afar ánægjuleg," segir Pétur. 86 verk voru á skrá á uppboðinu. Dýrasta verk þess var abstrakt málverk eftir Kristján Davíðsson, sem var slegið á 3,9 milljónir. Pétur segir alltaf eitthvað um það á uppboðum að lágmarks verð fáist ekki fyrir verkin, og því seldust myndirnar ekki allar. Hann treystir sér ekki til að giska á hve háar fjárhæðir hafi skipt um hendur á uppboðinu, en segir heildarmat verkanna hafa hlaupið á tugum milljóna. Listunnendur landsins virðast því ekki hafa læst veskjunum, þrátt kreppugrýluna. „Það hafa ekki allir tapað á hlutabréfunum, sumir hafa bara geymt peninginn undir kodda, og kaupa nú listaverk," segir Pétur. Hann segir þó að kreppan hafi vissulega áhrif á markaðinn. „Það má kannski orða það þannig að þetta sé frekar tími kaupenda en seljenda," segir Pétur. Fleiri verk séu í boði þegar kreppi að, og verðið sé um 10-20 prósentum lægra en það var í góðærinu.
Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Sjá meira