Dylan fluttur í Laugardalinn 25. apríl 2008 14:20 Bob Dylan verður í Laugardalnum en ekki í Egilshöllinni eins og stóð til.
Concert, sem hefur veg og vanda af tónleikum Bob Dylan hér á landi hefur tekið ákvörðun um að færa stórtónleikana þann 26. maí úr Egilshöll í nýju Laugardalshöllina. Þetta er gert í hagræðingarskyni en að öðru leyti verður fyrirkomulagið óbreytt; áfram er heildarmagn miða í boði 8.000, svæði A tekur 4.000 og svæði B einnig 4.000. Samkomulag hefur náðst við rekstraraðila Egilshallarinnar um þennan ráðhag að því er fram kemur í tilkynningu frá Concert. „Þegar tónleikarnir voru bókaðir var Egilshöllin fyrsti kostur Concert þó að ljóst væri að aðeins brot af húsnæðinu yrði notað," segir Ísleifur B. Þórhallsson, hjá Concert. „Nýja Laugardalshöllin hefur nú nýverið fengið öll tilskilin leyfi fyrir allt að 8.000 manna tónleika er því ekkert til fyrirstöðu að færa tónleikana í þangað og ná þannig fram talsverðri hagræðingu, ekki síst í ljósi þess að á sama stað heldur Concert aðra stórtónleika aðeins 3 vikum síðar." Ísleifur segir að skipuleggjendum atburða hérlendis veiti ekki af hagræðingu þessa dagana enda aðstæður á markaði að ýmsu leyti erfiðar. „Má þar nefna lækkandi gengi íslensku krónunnar sem hefur valdið 20-40% hækkun á stærstu kotnaðarliðunum og nýr 15-27% skattur á laun erlendra listamanna sem innlendum aðilum er nú gert að greiða og hlýtur leggjast þungt á allan þann rekstur hér á landi sem stundar innflutning á erlendum listamönnum, hvort sem um ræðir tónleikahaldara, leikhúsin, listahátíðir, skemmtistaði eða aðra." Ísleifur ítrekar að heildarmagn miða í boði á Bob Dylan tónleikana helst óbreytt og skipting milli A og B svæða sömuleiðis, „þannig að með þessari breytingu er ekki verið að minnka umfang tónleikanna eða breyta fyrirkomulagi þeirra." Þá kemur fram hjá Ísleifi að miðasalan hafi gengið vel og segir hann Íslendinga greinilega spennta fyrir komu þessarar miklu goðsagnar. „Hefur m.a.s. frést af töluverðum fjölda fólks út um víða veröld sem ætlar að sækja Ísland heim til að berja goðið augum í Reykjavík. Um 6.000 miðar hafa selst nú þegar, sem þýðir að aðeins um 2.000 miðar eru eftir. Dylan er í fantaformi þessa dagana og er að fá frábær viðbrögð hjá áhorfendum og gagnrýnendum um allan heim. Má því lofa einstæðum tónlistarviðburði 26. maí í nýju Laugardalshöllinni."
Mest lesið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Lífið Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Lífið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira