Innlent

Eldur á Players í nótt

Eldur kviknaði í skemmtistaðnum Players upp úr klukkan fimm í morgun og gerði brunavarnakerfi viðvart. Þegar slökkilið kom á vettvang var eldurinn staðbundinn í hrúgu af tuskum, sem iðnaðarmenn höfðu notað til að olíubera gólfin í gærkvöldi.

Talið er að um sjálfsíkveikju sé að ræða, því það þarf að lofta vel um tuskur, sem hafa verið vættar með því efni, sem borið var á gólfin. Slökkvistarf gekk vel, en mikill reykur barst um allt húsið. Það var reykræst en líklega þarf að hreinsa staðinn í hólf og gólf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×