Björgólfur ber af sér sakir í DV máli 16. desember 2008 13:37 Björgólfur Guðmundsson og Sigurjón Þ. Árnason.
Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður Landsbankans segist ekki hafa haft nein afskipti af því að Reynir Traustason, ritstjóri DV, hafi ákveðið að birta ekki frétt um Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans í blaðinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Björgólfur sendi frá sér fyrir stundu. „Í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi var fjallað um ástæður þess að DV birti ekki snemma í nóvember frétt um að Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefði stofnað ráðgjafafyrirtæki og leigði húsnæði í eigu Nýja Landsbankans. Spiluð var upptaka af samtali ritstjóra DV, Reynis Traustasonar, og blaðamanns, Jóns Bjarka Magnússonar, þar sem nafn mitt bar á góma. Af því samtali má draga þá ályktun að ég hafi haft afskipti af og komið í veg fyrir birtingu blaðsins á þessari frétt. Þetta er fjarstæða. Ég vissi ekkert um þessa frétt, - ég hafði engra hagsmuna að gæta þar sem samstarfi okkar Sigurjóns Árnasonar lauk við yfirtöku ríkisins á Landsbankanum mánuði áður og þar fyrir utan var ég ekki í neinni aðstöðu til að hafa áhrif skrif blaðsins. Ætli ritstjóri DV að halda því til streitu að ég hafi reynt að hafa áhrif á skrif blaðsins um ráðgjafastörf Sigurjóns Árnasonar verður hann að sanna mál sitt," segir Björgólfur. Björgólfur segir að það veki annars athygli sína en það komi í raun ekki á óvart að ritstjórinn, Reynir Traustason, kalli sig djöful og segi að ritstjórnin muni taka sig niður. Þá sé ekki annað að skilja en þetta hafi verið stefna blaðsins um all nokkurt skeið því ritstjórinn segir jafnframt: „En við höfum pönkast á honum (sic: Björgólfi Guðmundssyni) í hið óendanlega." Björgólfur segir að ristjórinn hljóti við fyrsta tækifæri að skýra þessa ritstjórnarstefnu blaðsins fyrir lesendum sínum og þá upplýsa jafnframt hvort það séu fleiri djöflar sem þurfi að taka niður og blaðið pönkist á.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Sjá meira