Lífið

Lít á þetta sem styrk fyrir mig sem listamann

Breki Logason skrifar
Eyþór Ingi fær töskuna góðu frá Bubba Morthens í gærkvöldi.
Eyþór Ingi fær töskuna góðu frá Bubba Morthens í gærkvöldi. MYND/Arnþór Birkisson

Það var hinn 18 ára gamli Eyþór Ingi Gunnlaugsson frá Dalvík sem hreppti söngvarastöðuna í Bandinu hans Bubba í gærkvöldi. Í lokaþættinum sigraði hann Arnar Már Friðriksson eftir harða keppni. Eyþór fékk einnig þrjár milljónir króna í verðlaunfé.

Vísir náði á Eyþór fyrir stundu þar sem hann var á leiðinni í sturtu og spurði hvað hann ætlaði að gera við peningana sem Bubbi gaf honum í gær?

„Ég ætla að fara vel með þessa peninga og lít meira á þetta sem styrk fyrir mig sem listamanna. Ætli maður nýti þetta því ekki eitthvað í þágu listarinnar," segir Eyþór Ingi hógvær en Bubbi ráðlagði honum að sleppa því að kaupa hlutabréf fyrir peningana.

„Nei ég ætla ekki að gera neitt svona yfirborðskennt eins og að kaupa hlutabréf," segir Eyþór og hlær.

Þegar úrslitin voru kunn í gærkvöldi kom Bubbi Morthens á svið og afhenti honum tösku með þremur milljónum króna. Taskan var þó lokuð og var ekkert opnuð í þættinum. Blaðamanni lá því forvitni á að vita hvort það hefðu í raun og veru verið einhverjir peningar í töskunni?

„Verður maður ekki bara að segja no comment við því," svarar Eyþór og hlær.

Aðspurður hvort hann hafi búist við því að hafa betur í gærkvöldi segir Eyþór. „Alls ekki, og sérstaklega ekki þegar stundin rann upp þegar krýna átti einhvern sigurvegara. Ég bjóst alls ekki við því að heyra nafnið mitt og þó það sé klisja þá er Arnar alveg geðveikur söngvari og það hljóta allir að sjá það," segir Eyþór og viðurkennir að sigurinn hafi því verið mjög sætur.

Hann segir framhaldið óráðið og nú séu menn á byrjunarreit um hvað skuli gera næst. Hann segist þó ekki ætla að vera of fljótfær með því að gefa út plötu strax í sumar.

„Ég ætla hinsvegar að reyna að spila og syngja eins mikið og vel og ég get," segir Eyþór en þegar er farið að hafa samband við hann með hugsanleg verkefni.

Vísir óskar Eyþóri innilega tilhamingju með sigurinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.