Lífið

Bale neitar ásökunum um fjölskylduofbeldi

Bale og Sibi eiginkona hans.
Bale og Sibi eiginkona hans.

Leikarinn Christian Bale neitar öllum ásökunum um að hafa beitt systur sína og móður ofbeldi samkvæmt talsmanni hans. Leikarinn var í haldi lögreglunnar í Lundúnum í dag en eftir yfirheyrslur var Bale sleppt án þess að ákærur hafi verið gefnar út á hendur hans.

Lögregluyfirvöld hafa lítið viljað tjáð sig um málið en staðfesti þó að „34. ára einstaklingur hafi verið látinn laus gegn tryggingu í dag og verði boðaður aftur til yfirheyrslu í september."

Árásin er talin hafa átt sér stað á hótelsvítu í Lundúnum, aðfararnótt mánudags, og hefur hún valdið gríðarlegu fjaðrafoki enda leikur Bale aðalhlutverkið í stærstu kvikmynd seinni ára, Dark Knight, sem slegið hefur hvert metið á fætur öðrum undanfarna daga.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.