Gordon Ramsey óttaðist um líf sitt við lundaveiðar 28. júlí 2008 13:24
Kokkurinn orðljóti, Gordon Ramsey, komst í hann krappann í Íslandsför sinni um daginn, þegar hann féll ofan af kletti niður í ískaldan sjó og drukknaði næstum því. Ramsey var hér að vinna að þætti fyrir Channel 4 sjónvarpsstöðina, þar sem hann ætlaði að veiða og elda lunda. En það gekk ekki þrautalaust að koma lundanum á diskinn. Í breska dagblaðinu The Sun er sagt frá því að þegar kokkurinn var að príla niður klett hafi hann runnið til og húrrað fram af rúmlega áttatíu metra háum kletti. Ramsey lenti í ísköldum sjó fyrir neðan og leist víst ekki á blikuna. „Ég hélt ég væri farinn. Skórnir mínir og pollabuxurnar drógu mig niður. Ég er frábær sundmaður, en ég komst ekki upp á yfirborðið. Ég sturlaðist af hræðslu og lungun á mér byrjuðu að fyllast af vatni," er haft eftir kokkinum, sem náði þó fyrir rest að losa sig úr skónum og komast upp á yfirborðið. Tökuliðið, sem hafði verið farið að óttast um kokkinn eftir 45 sekúndur í kafi, kastaði til hans kaðli og dró hann upp. Þetta voru ekki einu hremmingarnar sem Ramsey lenti í við veiðarnar. Einn lundinn beit hann í nefið, með þeim afleiðingum að sauma þurfti þrjú spor. En lundinn var lamb að leika sér við í samanburði við eiginkonuna sem beið hans heima. „Ég þorði ekki að segja henni frá þessu í fyrstu. En hún vissi að eitthvað hafði gerst. Hún varð alveg brjáluð," sagði Ramsey, og bætti við að óvíst væri hvort eiginkonan leyfði sér að mynda næstu þáttaröð sína - Dangerous food for boys.
Mest lesið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf Nýjasta sumartrendið í boði Travolta Tíska og hönnun „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Lífið samstarf „Þetta parísarhjól sökkar“ Menning Fleiri fréttir Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Sjá meira