Skriða verðhækkana gengur yfir 4. mars 2008 12:03
Skriða verðhækkana gengur nú yfir í matvöruverslunum og dæmi eru um hækkanir upp á 5 til 10 prósent að sögn formanns Neytendasamtakanna. Hann óttast frekari hækkanir á næstunni. Stjórn Neytendasamtakanna sendi forsætisráðherra nýlega bréf þar sem óskað er eftir því að hann beiti sér fyrir stofnun samráðsvettvangs til að hamla gegn verðhækkunum á matvörum. Samtökin óttast frekari hækkanir á næstu mánuðum verði ekkert að gert. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir verðlag á hraðri leið upp á við. Það eigi ekki bara við landbúnaðarvörur sem mikið hafi verið til umræðu síðustu daga. Birgjar hafi verið að hækka og tilkynna um verðhækkanir. Þá hafa Neytendasamtökin einnig sent erindi til Samkeppniseftirlitsins þar sem óskað er eftir rannsókn á þeim hækkunum sem hafa orðið. Telja samtökin mikilvægt að það verði skoðað hvort þær hækkanir sem um er að ræða eigi sér eðilegar skýringar. „Það eru vissar grunsemdir um það að verið sé að notfæra sér það ástand sem er á heimsmarkaði," segir Jóhannes og vísar til grunsemda um að seljendur noti hækkanir á heimsmarkaðsverði til að ná til sín aukinni álagningu. Jóhannes segir ávinning neytenda af virðisaukaskattslækkuninni í fyrra horfinn og að hækkanirnar nú muni skella á heimilum af fullum þunga. „Við erum ekki einvörðungu að tala um hækkanir á matvörum, þetta kyndir undir verðbólguna og mun koma með tvöföldum þunga á heimilin, alla vega þau heimili sem eru skuldsett í formi hækkunar vegna verðtrygginga lána," segir Jóhannes.
Mest lesið Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Innlent Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl Erlent Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Innlent Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Innlent Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Innlent „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Innlent Hvalfjarðargöngum lokað Innlent Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Innlent „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Innlent Fleiri fréttir Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Lögreglan leitar tveggja manna Frakkar viðurkenna Palestínu og stjórnarandstaðan á Alþingi mælist illa í nýrri könnun Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Sjá meira