Einar K: Óþolandi rangfærslur umhverfissamtaka 4. mars 2008 14:38 Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Einar K. Guðfinnson, sjávarútvegsráðherra, sagði í ræðu í Lilleström í dag að rangfærslur þekktra umhverfissamtaka um stöðu hvítfisksstofna væru óþolandi. Ráðherrann er staddur í Noregi á sjávarútvegsráðstefnu og þar lét hann þessi orð falla um samtökin og sagði þau láta einskis ófreistað til að koma málstað sínum á framfæri. „Á undanförnum árum höfum við Íslendingar, bæði stjórnvöld og aðrir sem hagsmuna eiga að gæta, orðið að verja vaxandi tíma og orku í að útskýra sjávarútvegsstefnu okkar og draga fram að hún er byggð á hugmyndafræðinni um sjálfbæra nýtingu," sagði Einar . „Þetta hefur meðal annars helgast af því að í umræðunni veður uppi alls konar rugl og rangar fullyrðingar. Þekkt samtök hafa haldið fram hreinum rangfærslum sem ekki hefur reynst auðvelt að leiðrétta. Sem dæmi um þetta má nefna hin þekktu samtök World Wildlife Fund, WWF, sem meðal annars halda því fram á sumum vefsíðna sinna og víðar, að þorskur sé í útrýmingarhættu. Líkt og að í heiminum sé einn fiskstofn, sem þorskur heitir, og lúti sams konar veiðistjórn um allan heim," sagði ráðherrann og bætti því við að það sé „algjörlega óþolandi" að þurfa að sitja undir „slíkum og þvílíkum rangfærslum" og sagði hann þær skaða orðspor Íslendinga og valda búsifjum á mörkuðum. „Má það telja undarlegt að samtök sem vilja láta taka sig alvarlega skuli haga sér með þessum hætti." Einar bætti því við að Íslendingar hafi sýnt að þeir séu reiðubúnir að taka erfiðar ákvarðanir sem valda tímabundnum efnahagslegum erfiðleikum, tekjutapi þjóðarbúsins og þrengingum á mörkuðum til skamms tíma, ef það megi verða til þess að byggja upp fiskistofnana. „Sem ábyrg nýtingarþjóð förum við bara fram á eitt, - það er að vera dæmd af verkum okkar og ákvörðunum. Íslendingar njóta sem betur fer álits fyrir að vinna að ábyrgð í sjávarútvegsmálum og það orðspor viljum við varðveita. Við teljum okkur hafa sýnt það að við stöndum undir þeirri viðurkenningu sem fiskurinn okkar nýtur á alþjóðavettvangi. Því er algjörlega ótækt að sætta sig við að óvandaður málflutningur einstakra aðila, sem hirða ekki um að leita sannleikans, skuli enn vaða gagnrýnislaust uppi." Ráðherra fór einnig yfir stöðu þorsks, ýsu, ufsa og karfa á Íslandsmiðum, almenn viðhorf til nýtingar fiskistofna og hvað til þurfi svo vel gangi. Hann sagði að sjálfbær nýting auðlindarinnar væri grundvallaratriði og virkt samstarf vísindamanna, stjórnvalda og atvinnugreinarinnar afar mikilvægt. Að endingu benti hann á, að þrátt fyrir allt sem á hafi dunið, sé staða fiskistofna við Ísland ívið betri en víðast hvar annars staðar.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Sjá meira