Persónuvernd skoðar skilmála Kaupþings 4. mars 2008 18:30
Persónuvernd skoðar nýlegar breytingar á kortaskilmálum Kaupþings sem gera bankanum kleift að safna saman persónuupplýingum um viðskiptavini sína og selja þær áfram til annarra fyrirtækja. Mögulegt er að skilmálarnir feli í sér nauðungarsamninga. Rúmlega fjörtíu þúsund viðskiptavinir Kaupþings fengu í síðasta mánuði sendan heim til sín bækling þar sem kynntir eru nýir kortaskilmálar bankans. Í bæklingnum er þó ekki sérstaklega tekið fram hverju er verið að breyta heldur er hinn nýi samningur einfaldlega birtur í heild sinni. Breytingarnar taka gildi næsta mánudag og ná til allra greiðslukorta bankans en markmiðið er að samræma alla núgildandi kortaskilmála. Meðal helstu breytinga má nefna að Kaupþing fær leyfi til að vinna persónuupplýsingar sem verða til við notkun kortsins en slík ákvæði eru nú í gildi fyrir hin svokölluðu e-kort. Upplýsingarnar ætlar bankinn að nota til að finna neyslumynstur fólks sem notað verður til að skipuleggja gerð tilboða en tilboðunum verður komið til korthafa meðal annars í formi SMS-skilaboða. Bankinn áskilur sér einnig rétt til að koma þessum upplýsingum til samstarfsaðila eftir að þær hafa verið gerðar ópersónugreinanlegar. Viðskiptavinur telst samþykkja hina nýju skilmála með því nota kortið eftir að breytingarnar taka gildi. Vilji hann það hins vegar ekki þarf hann að láta loka kortinu. Stöð tvö fjallaði um málið í síðustu viku en síðan þá hafa fjölmargir sett sig í samband við Persónuvernd samkvæmt upplýsingum þaðan. Þá hafa stofnuninni borist tvær skriflegar kvartanir þar sem óskað er eftir úrskurði í málinu. Meðal þess sem kvartað er undan er að skilmálarnir séu ekki í samræmi við lög um persónuupplýsingar. Þá vilja sumir meina að um nauðungarsamning sé að ræða þar sem fólk eigi í raun engra kosta völ. Persónuvernd skoðar nú málið en ekki er útilokað að Kaupþing þurfi að fresta gildistöku skilmálanna á meðan málið er til umfjöllunar.
Mest lesið Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Innlent Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Innlent Mangione sagður ætla að játa Erlent Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Innlent Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Innlent Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Erlent Fleiri fréttir Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Ökumenn beðnir um að sýna aðgát vegna fýlsunga Frá hrifningu til vonbrigða: Svona upplifðu borgarbúar almyrkvann Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og Grafarvogi Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Forskot Já-hliðarinnar mælist minna ESB-málin í brennidepli og uppgjör eftir almyrkvann Einn handtekinn vegna gruns um líkamsárás og hótanir „Ég get ekki orða bundist“ Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Bein útsending: Málstofa og sýning um íslensk námsgögn Umferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vanalega Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Allir í skýjunum með almyrkvann: Himnanir opnuðust á hárréttum tíma Greiddu atkvæði gegn ráðningu nýs bæjarstjóra Fjallabyggðar Gott að vera temmilega tortrygginn Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þorgerður afþakkaði Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Sjá meira