Gert ráð fyrir miklum framkvæmdum á Akureyri 4. mars 2008 16:13 Sigrún Björk Jakobsdóttir.
Byggingu Hofs menningarhúss, fyrri áfanga Naustaskóla og fimleikahúss verður lokið á árinu 2009. Unnið verður áfram að uppbyggingu íþróttasvæða í tengslum við væntanlegt landsmót UMFÍ. Þetta kemur fram í þriggja ára áætlun Akureyrarbæjar, sem lögð er fram í bæjarstjórn í dag. Auk framangreindra verkefna verður unnið að hefðbundinni uppbyggingu á gatna- og fráveitukerfi bæjarins en bæjaryfirvöld áforma að framkvæma fyrir rúma 2 milljarða króna á tímabilinu í þessum málaflokkum. Innifalið í því er bygging hreinsivirkis í Sandgerðisbót sem kosta mun nær 700 milljónir króna en þar af falla til tæpar 500 milljónir. kr. á árunum 2009-2011. Þá munu framkvæmdir Norðurorku halda áfram og miðast þær að því að tryggja fyrirtækjum, bæjarfélaginu og nágrannasveitarfélögum nægjanlega orku til upphitunar húsnæðis og eflingar atvinnulífs. Í forsendum þriggja ára áætlunar er gert ráð fyrir fjölgun íbúa um 200 á ári. Í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum segir að þróunin síðastliðin 10 ár sýni heldur meiri aukningu og síðasta ár hafi slegið öll met þegar bæjarbúum fjölgaði um ríflega 400 manns. Bærinn geri ráð fyrir að úttsvarsprósenta verði óbreytt á milli ára eða 13,03%.Gert ráð fyrir rekstrarafgangiÍ heild, þ.e. fyrir A- og B-hluta gerir áætlunin ráð fyrir góðum rekstrarafgangi á tímabilinu, þrátt fyrir aukna þjónustu við bæjarbúa á flestum sviðum. Veltufé frá rekstri í A- og B-hluta er rúmir 4,8 milljarðar króna á tímabilinu. Í A-hluta, þ.e. bæjarsjóði og A-hluta fyrirtækjum, er gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði tæpir 2 milljarðar króna á tímabilinu og skili það handbæru fé upp á rúma 1,5 milljarða í lok árs 2011. Gert er ráð fyrir að velta sveitarfélagsins og fyrirtækja þess verði um 14 milljarðar króna á ári þessi ár en þar af verði skatttekjur tæpir 6 milljarðar króna á ári. Bæjaryfirvöld segja að mikil uppbygging í stoðþjónustu bæjarfélagsins undanfarin ár hafi leitt til vaxandi rekstrarútgjalda en tekjuþróun sveitarfélagsins brúi bilið að mestu leyti. Tekið sé á þessari þróun með 50-150 milljóna kr. árlegri hagræðingarkröfu í rekstri málaflokka. Þá segja bæjaryfirvöld að fjárhagsleg staða Akureyrarbæjar sé traust og þrátt fyrir miklar framkvæmdir aukist skuldir A- og B-hluta lítið á tímabilinu en verði þó nokkuð lægri á hvern íbúa árið 2011 en það var í árslok 2006. Bæjaryfirvöld segja að eiginfjárhlutfall Aðalsjóðs hækki úr 0,68 í 0,78 á tímabilinu. Veltufjárhlutfall Aðalsjóðs verði mjög gott eða 2,9 í lok tímabilsins.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Sjá meira