Tollar á fóðurblöndum hindra samkeppni 4. mars 2008 12:38 MYND/Páll Gunnar
Samkeppniseftirlitið beinir þeim tilmælum til landbúnaðarráðherra að hann beiti sér fyrir því að afnema tolla á fóðurblöndum. Þetta kemur fram í áliti sem eftirlitið hefur sent ráðherra og birt er á heimasíðu stofnunarinnar. Þar segir einnig að mikil fákeppni ríki á markaði fyrir framleiðslu og sölu á fóðri fyrir jórturdýr, svín og alifugla á Íslandi. Um árabil hafi einungis verið tvö fyrirtæki á Íslandi sem framleiða og selja fóður. Með innflutningi á fóðurblöndum sé unnt að veita innlendum framleiðendum samkeppnislegt aðhald. Samkeppniseftirlitið vísar til þess að lagður sé tollur á innfluttar fóðurblöndur, 3,90 krónur á hvert kíló. Þessi tollur vinni gegn innkomu nýrra keppinauta sem áhuga hefðu á að selja tilbúnar fóðurblöndur á innlendum fóðurmarkaði og fari þannig gegn markmiðum samkeppnislaga. Að mati Samkeppniseftirlitsins myndi afnám fóðurtollsins stuðla að aukinni samkeppni á fóðurmarkaði, bændum og neytendum til hagsbóta. Að sama skapi myndu framangreindar aðgerðir stuðla að lækkun framleiðslukostnaðar bænda og þar með að lægra verði á matvælum til neytenda. „Að undanförnu hafa orðið miklar verðhækkanir á fóðri hér á landi og sökum m.a. þessa hafa verið boðaðar verðhækkanir á landbúnaðarafurðum. Í ljósi þessa er athygli landbúnaðarráðherra vakin á því í álitinu að afar mikilvægt sé að afnema umræddan verndartoll hið fyrsta og skapa þannig skilyrði fyrir aukinni samkeppni á íslenskum fóðurmarkaði," segir Samkeppniseftirlitið. Að sögn Samkeppniseftirlitsins hefur það unnið að því að auka virka samkeppni og lækka matvöruverð. Eitt af þeim atriðum sem Samkeppniseftirlitið taldi ástæðu til að gera athugasemdir við og athuga nánar var innflutningsvernd á búvörum og er þetta álit liður í þeirri athugun. Samkeppniseftirlitið hefur til athugunar aðrar innflutningshömlur á þessu sviði.
Mest lesið „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Fleiri fréttir Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Sjá meira