Stækkun Kringlunnar tefst vegna sviptinga í borgarstjórn 4. mars 2008 12:09
Áform um stækkun Kringlunnar hafa tafist vegna sviptinga í borgarstjórn, segir framkvæmdastjóri Landic Property á Íslandi sem á stærstan hluta verslunarkjarnans. Hann vonast til að nýi meirihlutinn í borginni taki málið föstum tökum. Tíð meirihlutaskipti í borginni hafa áhrif á ýmsum sviðum og meðal annars orðið til að hugmyndir um að stækka Kringluna hafa enn ekki gengið í gegn. Landic Property og SPRON hafa nú í þrjú ár unnið að hugmyndum um stækkun Kringlunnar með tengingu yfir Kringluveginn yfir að því svæði þar sem nú standa Morgunblaðshúsið og Sjóvá. Framkvæmdastjóri Landic Property á Íslandi, Örn Kjartansson, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í morgun að hugmyndir hafi verið kynntar skipulagsyfirvöldum í borginni en málið hafi tafist vegna tíðra meirihlutaskipta. Það er meðal annars vegna þess að hönnun á stækkaðri Kringlu verður að taka mið af því sem gert verður á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar en eins og kunnugt er hafa meirihlutarnir þrír sem setið hafa við völd í borginni síðustu tvö ár ekki haft sömu skoðun á því hvort þar skuli vera mislæg gatnamót eður ei. Örn segir mikla þörf fyrir stækkun, allt verslunarpláss sé í útleigu og bílastæði sprungin á álagstímum. Síðustu þrjú árin hafi verið mikil uppbygging á verslunarhúsnæði í nágrannasveitarfélögum og því hefði félagið viljað að ferlið gengi hraðar fyrir sig. Hins vegar vonist þeir til að niðurstaða náist á þessu ári og þá gæti enn stærri kringla verið risin á næstu 3-5 árum.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Fleiri fréttir Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Sjá meira