Keane og Berbatov vilja fara - Tottenham leggur fram kvörtun 18. júlí 2008 20:23 Keane og Berbatov hafa báðir farið fram á sölu frá Tottenham NordcPhotos/GettyImages
Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, viðurkennir að bæði Robbie Keane og Dimitar Berbatov hafi farið fram á sölu frá félaginu. Hann hefur lagt inn formlega kvörtun til úrvalsdeildarinnar vegna ummæla knattspyrnustjóra Liverpool og Manchester United. Robbie Keane hefur undanfarið verið orðaður við Liverpool og hefur Rafa Benitez, stjóri Liverpool, oftar en einu sinni lýst yfir áhuga sínum á leikmanninum í fjölmiðlum. Sir Alex Ferguson hefur ekki aðeins lýst því yfir að hann vilji kaupa Dimitar Berbatov, heldur sagðist hann í dag fullviss um að landa leikmanninum innan skamms. Bæði Berbatov og Keane eru samningsbundnir Tottenham og stjórnarformaður félagsins á ekki til orð yfir afskiptum stjóranna. "Ummæli knattspyrnustjóra Manchester United í dag varðandi Dimitar Berbatov bera vott um ótrúlegan hroka og miðast við að grafa undan leikmanninum hjá félaginu. Þetta er líklega eitthvert grófasta reglubrot þessarar tegundar í sögu úrvalsdeildarinnar og hræsnin í orðum hans er ótrúleg í ljósi þess sem hann sagði um Real Madrid og Cristiano Ronaldo," sagði Levy. Hann segir Tottenham strax hafa gefið út yfirlýsingu til Liverpool og Manchester United þegar spurðist út að félögin hefðu áhuga á framherjunum, en það hafi ekkert haft að segja. Því hafi Tottenham nú ákveðið að klaga þá Benitez og Ferguson til úrvalsdeildarinnar. "Hegðun beggja félaga hefur verið til háborinnar skammar og þau hafa bæði verið kerfisbundið að moka undan leikmönnum okkar allar götur síðan - þvert á reglur deildarinnar," sagði Levy, en hann viðurkennir að báðir leikmenn hafi farið fram á sölu. "Svona er staðan hjá okkur í dag. Bæði Keane og Berbatov hafa gert okkur ljóst að þeir vilji fara frá félaginu. Hvað svo sem verður ætlum við að halda áfram að sanka að okkur hæfileikamönnum - mönnum sem vilja spila fyrir Tottenham," sagði Levy.
Enski boltinn Mest lesið Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Fleiri fréttir „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Sjá meira