Vill að svar til mannréttindanefndar SÞ verði kynnt þingi 26. maí 2008 15:26 MYND/GVA
Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, deildi á ríkisstjórnina í dag fyrir að vilja ekki leyfa þinginu að ræða væntanlegt svar ríkisstjórnarinnar við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðherra sagði hins vegar ekkert sem mælti gegn því að málið yrði rætt á þingi. Mannréttindanefndin komst að því í fyrra að íslenska kvótakerfið bryti í bága við Mannréttindasáttmála SÞ og hefur ríkisstjórnin frest til 11. júní til þess að bregðast við því. Guðni Ágústsson benti á að Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefði lýst því yfir 7. maí að hann vonaðist til að svarið lægi fyrir áður en þing færi heim, en áætlað er að ljúka þingstörfum á fimmtudag. Sagði Guðni að óvissa skapaðist í sjávarútvegi þegar þingið færi heim ef ekki yrði brugðist við álitinu. Ríkisstjórnin væri með tvær skoðanir í málinu, Samfylkingin vildi breytingar en Sjálfstæðisflokkurinn ekki, en þetta væri mannréttindamál sem þyrfti að bregðast við. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði tímann hafa verið nýttan vel frá því að álitið hefði borist íslenskum stjórnvöldum í fyrra. Minnti hann á að álitið væri ekki bindandi að alþjóðarétti en sjávarútvegsráðherra hefði fyrir hönd ríkisstjórnarinnar látið vinna vandaða lögfræðivinnu fyrir málið. Það styttist í að svarið væri tilbúið og Guðni þyrfti ekkert að efast um að erindinu yrði svarað. Guðni sagði þá ljóst út frá orðum forsætisráðherra að ekki yrði staðið við orð sjávarútvegsráðherra frá 7. maí um að svarið lægi fyrir áður en þingið færi heim. Spurði hann hvers vegna þingið ætti ekki að fá að sjá svar stjórnvalda og benti á að stjórnarandstaðan hefði sitt um málið að segja. Geir H. Haarde sagði hins vegar ekkert sem mælti gegn því að málið yrði rætt á þingi.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira