Enski boltinn

Bobby Zamora til Fulham

Elvar Geir Magnússon skrifar
Bobby Zamora er á leið frá West Ham.
Bobby Zamora er á leið frá West Ham.

Fulham er að ganga frá kaupum á sóknarmanninum Bobby Zamora frá West Ham. Zamora er að gangast undir læknisskoðun á Craven Cottage.

Fulham náði samkomulagi við West Ham um kaupverðið á Zamora og félaga hans, John Pantsil.

Zamora kom til West Ham frá Tottenham 2004 og skoraði 30 mörk í 130 leikjum fyrir félagið.

Zamora á að fylla skarðið sem Brian McBride skilur eftir sig hjá Fulham.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×