ABBA-sveit aumkar sig yfir Íslendinga 31. október 2008 10:10 Arrival
Hinn margnefndi efnahagslegi „brimskafl" sem Ísland siglir nú í gegnum hefur vakið mikla samúð frænda okkar á Norðurlöndum. „Þær hremmingar sem Íslendingar hafa gengið í gegnum undanfarnar vikur hafa ekki farið fram hjá okkur," segir Tomas Jernberg, umboðsmaður sænska ABBA-ábreiðubandsins Arrival. Sveitin er á leið hingað til lands með sýningu sína, „The Music of ABBA", en vegna hruns krónunnar var lengi vel óvíst hvort yfirhöfuð tækist að koma sveitinni til landsins. Arrival liðar ákváðu því að hjálpa til og lækka þóknun sína svo af sýningunni gæti orðið. „Okkur fannst það vera það minnsta sem við getum gert fyrir frændur okkar í norðri," segir Tomas, og bætir við að sveitin hlakki mikið til ferðarinnar. Arrival hefur ferðast með ABBA-sýninguna í þrettán ár - lengur en hljómsveitin ABBA starfaði - og sýnt í yfir 20 þjóðlöndum. Sýningin hefur notið mikilla vinsælda og hafa ABBA-aðdáendaklúbbar víða um heim kosið hana bestu ABBA-sýningu allra tíma. Gagnrýnendur hafa gengið svo langt að segja Arrival betri en upprunalegu ABBA-hljómsveitina. Þrettán tónlistamenn skipa sveitina, og er allur tónlistarflutningur lifandi. Mikið er lagt í búningana en Arrival er eina hljómsveitin í heiminum sem hefur leyfi til að klæðast nákvæmum eftirlíkingum af búningum ABBA. Sveitin vinnur náið með höfuðpaurum ABBA, þeim Björn Ulvaeus og Benny Andersson, og er þessa dagana að gefa út áður óútgefið ABBA-lag sem ber heitið Just a notion. Tónleikarnir verða laugardagskvöldið 8. nóvember kl. 21 og eru miðar seldir á midi.is.
Mest lesið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Lífið samstarf Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Lífið samstarf Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Tónlist Útför Megasar Lífið Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Lífið Fleiri fréttir Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Sjá meira