Innlán voru meirihluti eigna í sjóði Kaupþings 12. desember 2008 12:45
Innlán voru tveir þriðju eigna peningamarkaðssjóðs Kaupþings. Annað var í skuldabréfum, mest frá Kaupþingi og Existu. Ætla má af yfirliti Nýja Kaupþings um sjóðinn að skuldabréf fyrir sjö milljarða króna hafi verið keypt úr sjóðnum. Fram kemur í upplýsingum frá Nýja Kaupþingi að 36,3 milljarðar króna hafi verið í sjóðnum þegar greitt var úr honum. Þá hafi tekist að greiða út um 85 prósent af því, um 31 milljarð króna. Skuldabréfin hafi því verið keypt með um 44 prósenta afslætti. Skuldabréf útgefin af Kaupþingi voru 11,4 prósent af eignum sjóðsins og skuldabréf útgefin af Exista voru tæp sjö. Hlutur annarra útgefenda var minni. Fram kemur í yfirliti Kaupþings að sjóðurinn hafi smækkað mjög frá því fyrir um ári. Þá voru um 84 milljarðar í sjóðnum. Skuldabréf fjármálafyrirtækja voru um 15 milljarðar af því og skuldabréf annarra fyrirtækja hátt í 40 milljarðar. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst var ákveðið að reyna að draga úr stærð sjóðsins og auka hlutfall innlána þar, eftir að eignarhaldsfélagið Gnúpur fór á hausinn fyrir um það bil ári. Helstu eignir félagsins voru í FL Group, en félagið gaf sjálft út mikið af skuldabréfum. Talið hefur verið að háar fjárhæðir, jafnvel yfir hundrað milljarðar króna hafi runnið frá nýju ríkisbönkunum inn í sjóðina. Um þetta hefur mikið verið spurt á Alþingi. Ekki hafa enn fengist ítarleg svör, önnur en að viðskiptaleg sjónarmið hafi ráðið kaupum á skuldabréfum. Fram kom í Markaðnum fyrir skömmu að Nýi Glitnir hefði greitt 13 milljarða króna í sjóð 9. Engar sambærilegar upplýsingar hafa fengist frá Landsbankanum, þrátt fyrir að um það hafi verið spurt. -ikh
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira