Forlagið styrkir Réttindastofu sína Atli Steinn Guðmundsson skrifar 20. maí 2008 16:12 Jóhann Páll Valdimarsson. MYND/Stöð 2
Töluverðar skipulagsbreytingar eru fyrirhugaðar á útgáfusviði Forlagsins á næstunni. Í fréttatilkynningu kemur fram að markmið breytinganna sé að styrkja starfsemi Réttindastofu Forlagsins og efla útgáfustarfsemi þess til að svara betur fjölbreyttri eftirspurn á íslenskum bókamarkaði. Ýmsar breytingar á starfsliði Forlagsins eru orðnar eða væntanlegar. Oddný S. Jónsdóttir hefur tekið við ritstjórn kennslubóka sem Laufey Leifsdóttir sinnti áður en sú síðarnefnda færir sig nú alfarið yfir í umsjón vef- og orðabóka. Þá tekur Hólmfríður Matthíasdóttir við málefnum Réttindastofu Forlagsins en hún á að baki langan feril við útgáfustörf erlendis, meðal annars á Spáni. Segir í tilkynningu Forlagsins að með þátttöku Íslands sem heiðursgests á bókastefnunni í Frankfurt árið 2011 gefist einstakt tækifæri til að nýta til fullnustu það sem því fylgi. Að lokum er þess getið að Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur taki við starfi útgáfustjóra Máls og menningar 1. september næstkomandi en hún hefur auk annars haft með höndum ritstjórn Tímarits Máls og menningar undanfarin ár. Hyggist Silja byggja við sterkan útgáfulista innlendra höfunda og víkka sjóndeildarhringinn með nýjustu straumum og stefnum í erlendum bókmenntum.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Sjá meira