Lífið

Konur sjúkar í Harry Potter

Daniel Radcliffe í kvennafans.
Daniel Radcliffe í kvennafans.

Leikarinn Daniel Radcliffe, sem er 19 ára gamall, fékk ekki frið frá kvenkynsdönsurnum í söngleiknum A Chorus Line í Schoenfeld leikhúsinu í New York þegar hann leit við baksviðs eftir sýninguna.

Daniel, sem mun birtast kviknakinn í næstu kvikmynd um galdrastrákinn Harry Potter, segist ekki eiga auðvelt með að kynnast konum þrátt fyrir þá staðreynd að þær eru allar sjúkar í hann.

Það er ekki að sjá að Daniel leiðist athyglin.

Burtséð frá erfiðleikum leikarans í kvennamálum þá hefur frumsýningardegi nýju kvikmyndarinnar um Harry Potter verið frestað um átta mánuði, eða þar til í júlí 2009.

Forstjóri framleiðandans Warner Bros, Alan Horn, segir að með frestuninni hafi þeir viljað tryggja myndinni mikla aðsókn næsta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.