Fjölbreytilegri samgöngur til að bæta lýðheilsu 19. maí 2008 12:40
Auka þarf fjölbreytileika í samgöngum og þétta byggð til þess að bæta lýðheilsu í höfuðborginni að mati formanns skipulagsráðs Reykjavíkurborgar. Mengun af völdum umferðar er þegar byrjuð að hafa veruleg áhrif á heilsu ungra barna.Fjallað var um tengsl lýðheilsu og borgarskipulags á málþingi sem Lýðheilsufélagið stóð fyrir í Iðnó í morgun. Á fundinum kom meðal annars fram að aukin áhersla á einkabílinn í borgarskipulagi hafi haft þau áhrif að fólk hreyfi sig minna sem síðan stuðlar að verri lýðheilsu. Auka þurfi fjölbreytileika í samgöngum og þétta byggð til að snúa þessari þróun við.„Svo held ég að það sé verkefni sem við þurfum að hugleiða sérstaklega, hvernig nýtum við opnu rýmin okkar betur. Hvernig gefum við fólki aukin tækifæri til útivistar og það að nýta þessi sameiginlegu rými sem við eigum. Síðan er það ákveðin gæði og fegurð í umhverfinu sem skiptir máli," segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, formaður skipulagsráðs borgarinnar.Hanna Birna segir nauðsynlegt að þétta byggð og horfir meðal annars til Vatnsmýrarinnar í þeim efnum. „Ég held að í framtíðinni fari flugvöllurinn. Núna erum við þegar byrjuð að skipuleggja jaðarsvæðin í kringum völlinn til þess að nýta þetta svæði betur fyrir fólk."MYND/PjeturDagur B. Eggertsson borgarfulltrúi segir mengum af völdum bílaumferðar vera vandamál. „Við þurfum að glíma við sömu vandamál og aðrar borgir í heiminum og sumt hjá okkur er verra en þar. Til dæmis er ýmislegt sem bendir til þess að umferð sé farin að hafa veruleg áhrif á heilsu ungra barna," segir Dagur og bendir einnig á að erlendar rannsóknir sýni að tengsl séu á milli svifryksmengurnar og tíðni hjartaáfalla.Aðspurður hvort hann telji að flugvöllurinn þurfi að víkja til þess að líðan borgarbúa verði betri segir Dagur: „Það mundi sannanlega skila ákveðnum áfanga en það er ekki nóg. Við þurfum líka huga að heilsunni í öllum hverfum."
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira