Gísli Marteinn hlakkar til námsvetrar í Edinborg Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. ágúst 2008 09:00 Gísli Marteinn verður á faraldsfæti næsta vetur. Mynd/ Stefán.
Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist hafa fengið mikinn stuðning frá öðrum borgarfulltrúum, bæði í meirihluta og minnihluta, til að láta draum sinn um að komast í meistaranám í Edinborgarháskóla rætast.Verður á faraldsfæti Eins og Vísir greindi frá í gærkvöld mun Gísli Marteinn dvelja við nám í Edinborg næsta vetur. Hann mun þó verða með annan fótinn hér á landi allt árið enda á hann, Vala eiginkona hans og dætur þeirra marga aðstandendur hér á landi sem erfitt er að slíta sig frá. „Fjölskyldan flytur öll út. Vala mun halda áfram með námið sitt í H.Í. frá Edinborg og stelpurnar fara í grunnskóla í borginni. Borgarstjórnarfundir eru tvisvar í mánuði. Ég mun reyna að sækja þá sem flesta, eins og borgarfulltrúar hafa áður gert þegar þeir hafa farið til náms erlendis," segir Gísli Marteinn í samtali við Vísi.Gott tækifæri Icelandair flýgur frá Glasgow og er flugtíminn um klukkutími og þrjú korter. „Þannig að þetta er ekki stórmál. Auk þess verð ég virkur þátttakandi í opinberri umræðu á milli þess sem ég læt að mér kveða á borgarstjórnarfundum," segir Gísli jafnframt. Gísli segir að sér hafi fundist tækifærið vera of gott til að láta það sér úr greipum ganga og hlakki mikið til næsta vetrar. Hann segist þakklátur fyrir þann góða stuðning sem hann hafi fengið frá öðrum borgarfulltrúum til að láta þennan draum verða að veruleika.Hlakkar til að snúa til baka „Og eins og ég hlakka til að takast á við verkefni vetrarins, hlakka ég líka til að snúa aftur af fullum krafti í borgarmálin í Reykjavík, vonandi nokkurs vísari, og að klára þau fjölmörgu góðu verkefni sem við erum með í gangi. Það veitir ekki af öllum þeim kröftum sem fáanlegir eru til að lyfta fylginu upp á nýjan leik," segir Gísli Marteinn að lokum.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira