Skógarbjörn, sem nýlega kom fyrir í Will Ferell kvikmyndinni Semi-Pro, hefur orðið þjálfara sína að bana. Björninn var mikið notaður í kvikmyndum og er talinn sá best þjálfaði í Hollywood.
Lögregla veit ekki hvað olli því að björninn réðst á þjálfara sinn, Stephan Miller, og beit hann í hálsinn með þeim afleiðingum að Miller lést.
Miller var 39 ára gamall.