Flutningabíll slítur vegum á við 12 þúsund fólksbíla 6. maí 2008 14:33 Úr myndasafni.
Flutningabíll með tengivagn og áttatíu prósenta hleðslu slítur vegi á við 12 þúsund bifreiðar sem eru 1800 kíló að þyngd. Þetta kemur fram í svari samgönguráðherra við fyrirspurn Árnmanns Kr. Ólafssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Þar kemur enn fremur fram að ein ferð flutningabíls án tengivangns með 80 prósent hleðslu geti valdið svipuðum niðursbrotsáhrifum á vegum og níu þúsund ferðir 1,8 tonna bíls. Í svarinu segir einnig að aukið niðurbrot þungra bifreiða á vegum umfram það niðurbrot sem léttari bifreiðar valda byggist á því að við ákveðin þyngdarmörk margfaldist áhrif á burðarlag vegarins. Niðurbrotsáhrif þungra bifreiða á burðarþol vega geti verið breytileg, m.a. eftir styrkleika vegar og búnaði ökutækja. „Þannig verður hlutfallslegt niðurbrot þungrar bifreiðar meira á vegi með veika uppbyggingu heldur en á vegum með sterka uppbyggingu. Fjöðrunarbúnaður, hjólbarðar og gerð ökutækis getur einnig haft mismunandi áhrif á niðurbrot. Það svar sem hér er gefið byggist á einföldu módeli af þeim aðstæðum sem taldar eru dæmigerðar hér á landi," segir í svari ráðherra. Þá segir í svarinu að ef horft sé til slits nagladekkja á bundnum slitlögum megi ætla að það geti verið um fjórum sinnum meira miðað við hvert dekk flutningabílsins. Það geti þó verið háð ýmsum forsendum, svo sem þyngd nagla, gerð slitlags o.fl.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira