Gagnrýndi samning um rekstur Iðnskólans 5. mars 2008 16:12 MYND/Stefán
Þingmenn Vinstri - grænna gangrýndu í dag menntamálaráðherra fyrir samning sem gerður hefur verið við Menntafélagið ehf. um að reka Iðnskólann í Reykjavík og Fjöltækniskólann og sögðu hann einkavæðingu. Menntamálaráðherra sagði ekki um einkavæðingu að ræða heldur einkarekstur. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, var upphafsmaður utandagskrárumræðu á Alþingi sem bar yfirskriftina einkavæðing Iðnskólans í Reykjavík. Sagði Kolbrún að verkefni væru falin einkaaðilum en ríkið borgaði og þetta væri kallaður einkarekstur. Síðar kæmi svo gjaldtaka. Sagði hún ömurlegt að horfa upp á flokk sem kallaði sig jafnaðarmannaflokk Íslands að láta teyma sig þessa leið. Sakaði hún menntamálaráðherra um að stýra málinu með gerræðislegum hætti og að ekki hefði farið fram mikil umræða um málið. Hún benti á að mikil óánægja væri meðal starfsmanna Iðnskólans með það hvernig staðið væri að samrunanum. Spurði Kolbrún meðal annars hvernig skólinn yrði betur í stakk búinn til að mennta fólk en Iðnskólinn hefði verið og hvernig tekið yrði á húsnæðismálum og starfsmannamálum skólans. Enn fremur spurði hún hvernig tryggt yrði að innritunargjöld myndu ekki hækka eins og ráðherra hefði lofað í fyrra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði ekki um einkavæðingu heldur einkarekstur að ræða, samning um að einkaaðilar tækju að sér þjónustu fyrir hönd ríkisins. Þá sagði hún það þvælu að málið hefði ekki verið rætt víða og sagði að samningurinn yrði kynntur fyrir menntamálanefnd ef áhugi væri fyrir því. Þá hafnaði hún ásökunum um lítið samráð. Enn fremur sagði ráðherra að allir starfsmenn héldu störfum sínum og réttindum og Iðnskólinn yrði áfram í sama húsnæði. Hún teldi að með þessum samningi væri verið að taka skref til að efla iðnmám í landinu. Þá fagnaði hún aðkomu Menntafélagsins að málinu og vísaði til þess að einkareknir háskólar hefðu verið brautryðjendur á vissum sviðum hér á landi. Gagnrýni á einkarekstur kæmi yfirleitt úr sömu átt og þær raddir hefðu alltaf haft rangt fyrir sér.
Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu