Sver af sér grín á kostnað fórnarlambs kynferðisafbrots 5. mars 2008 15:11 Þorrablótið var haldið í Brúarásskóla. MYND AF HEIMSÍÐU BRÚARÁSSKÓLA
Jóhann Árnason, bóndi á Giljum, neitar því að hafa gert grín að fórnarlambi eigin kynferðisafbrots á þorrablóti Jökulsárhlíðar og Jökuldals sem fram fór fyrir skömmu. Því var haldið fram á vefsíðu staðarblaðsins Austurgluggans. „Það er meira en nóg er komið af þessu máli. Skemmtiatriðunum var í engu beint gegn téðu fórnarlambi og hefðu getað átt við hvað sem er og hvern sem er og það sem fer fram á þorrablóti fer fram á þorrablóti og á ekki að fara víðar. Einar Ben ætti að finna sér eitthvað annað að gera," segir Jóhann og vísar til fréttarinnar í Austurglugganum. Einar Þorsteinsson, ritstjóri Austurgluggans, skrifaði frétt um málið á vefsíðu Austurgluggans á mánudag. Í fréttinni var því haldið fram að Jóhann, sem situr í þorrablótsnefndinni, og aðrir sem sáu um skemmtiatriðin hefðu gert óspart grín að dómi þeim sem Jóhann hlaut fyrir kynferðisafbrot í Héraðsdómi Austurlands í lok janúar. Jóhann, sem fékk 30 daga skilorðsbundinn dóm fyrir að „hafa að kvöldi laugardagsins 23. júní 2007 í félagsheimilinu Valaskjálf á Egilsstöðum, sett hendi sína unn undir bol fórnarlambsins um hálsmál og gripið um brjóstarhaldara sem hún klæddist og togað í hann." Í frétt Austurgluggans kemur fram að söngdagskráin hafði verið klippt út þannig að hún minnti á brjótarhaldara og í það látið skína þetta gæti verið eftirmynd brjóstarhaldara fórnarlambs kynferðisafbrotamálsins gegn Jóhanni. Aðspurður um orð Jóhanns sagði Einar ritstjóri að fleiri en einn og fleiri en tveir hefðu komið að máli við sig eftir Þorrablótið og lýst hneykslun sinni á þessu. „Þegar menn hegða sér svona þá er þetta auðvitað spurning um siðferðilega afstöðu. Fyrir mér er það óskiljanlegt að vera að rifja upp þetta mál sérstaklega í ljósi þess að líklegt var að umrætt fórnarlamb myndi mæta á svæðið. ég skil bara ekki svona," segir Einar og stendur fastur á frétt sinni.
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Landsréttur hafnaði líka kröfu um varðhald yfir konunum Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Sjá meira