Geir: Dagur má hafa sínar skoðanir 26. mars 2008 15:22 Geir Þorsteinsson
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, hafði ekki séð viðbrögð Dags B. Eggertssonar við bréfinu sem Geir sendi borgarstjóra Reykjavíkur vegna framúrkeyrslu við byggingu nýrrar stúku við Laugardalsvöll og vildi því ekki tjá sig um svörin þegar Vísir ræddi við hann í dag. Geir segir að Dagur megi hafa sínar skoðanir á bréfinu en að KSÍ standi við efni bréfsins. Vísir greindi fyrst frá bréfinu í morgun. Í því biður Geir Þorsteinsson Reykjavíkurborg afsökunar á því að ekki hafi verið haldnir fleiri fundir í byggingarnefndinni sem áti að hafa eftirlit með framkvæmdum. Hins vegar segist Geir í bréfinu ekki getað setið undir þeim fullyrðingum sem Dagur B. Eggertsson hafði upp í fjölmiðlum um að honum hefði ekki verið kunnugt um framúrkeyrsluna í Laugardal. Í bréfinu segir Geir að Dagur hafi setið báða fundi byggingarnefndarinnar þegar afdrífaríkustu ákvarðanirnar í málinu voru teknar án þess að gera athugasemdir. "Honum átti að vera fullkunnugt um þessa framúrkeyrslu," segir Geir í bréfinu. Þessu neitar Dagur. „Í þessum texta eru fulllyrðingar sem stangast á við fyrirliggjandi gögn og fundargerðir auk yfirlýsinga Geirs sjálfs frá því fyrir páska. Ég átta mig þess vegna ekki á því hvernig þetta varð til," segir Dagur. Hann segir að í bréfi Geirs sé missagt hvað fór fram á fundum byggingarnefnda. Þá segir Dagur það liggja fyrir að KSÍ hafi tekið einhliða ákvörðun um að semja við Ístak um framkvæmdir án nokkurs samráðs. Einnig hafi KSÍ gert beytingar á útboðsgögnum án aðkomu byggingarnefndar eða borgarinnar. Þá leggur Dagur áherslu á að stærstur hluti framúrkeyrslunnar sé vegna viðbótar- og aukaverka sem KSÍ samþykkti löngu eftir kosningar. Hann hafi þá verið hættur í byggingarnefndinni. „Það þarfnast því alveg sérstakra skýringa hvers vegna formaður KSÍ kýs að gera minn hluta í þessu tortryggilegan. Vegna þess að í minni tíð var þó eitthvað eftirlit af hálfu bygginganefndar. Eftir stendur þó að engin viðbótar- og aukaverk sem KSÍ samþykkti voru borin undir byggingarnefnd," segir Dagur B. Eggertsson.
Tengdar fréttir Dagur segir augljósar missagnir í máli formanns KSÍ Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að efni bréfs sem Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sendi borgarstjóra varðandi störf nefndar um byggingaframkvæmdir á Laugadalsvelli komi sér á óvart. 26. mars 2008 12:58 Formaður KSÍ segir Degi hafa verið fullkunnugt um framúrkeyrslu Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, segist ekki geta setið undir þeim fullyrðingum Dags B Eggertssonar, sem átti sæti í nefnd um framkvæmdir við Laugadalsvöll, að honum hafi verið ókunnugt um það, þar til fyrir skömmu, 26. mars 2008 11:36 Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Fleiri fréttir Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Sjá meira
Dagur segir augljósar missagnir í máli formanns KSÍ Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að efni bréfs sem Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sendi borgarstjóra varðandi störf nefndar um byggingaframkvæmdir á Laugadalsvelli komi sér á óvart. 26. mars 2008 12:58
Formaður KSÍ segir Degi hafa verið fullkunnugt um framúrkeyrslu Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, segist ekki geta setið undir þeim fullyrðingum Dags B Eggertssonar, sem átti sæti í nefnd um framkvæmdir við Laugadalsvöll, að honum hafi verið ókunnugt um það, þar til fyrir skömmu, 26. mars 2008 11:36