Íslenska sem annað mál 26. mars 2008 11:41 Alþjóðahús.
Íslensk málnefnd og Alþjóðahús standa fyrir málþingi um íslensku sem annað mál á föstudaginn. Haraldur Bernharðsson, málfræðingur hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, er einn frummælenda á þinginu en hann á enn fremur sæti í Íslenskri málnefnd. „Aðdragandinn að þessu öllu saman er að Íslensk málnefnd vinnur nú að því að móta íslenska málstefnu og gera tillögu að henni til menntamálaráðherra. Þetta er stórt og viðamikið verkefni og hluti vinnunnar er að halda ein 11 málþing nú á vormisseri þar sem fjallað er um ólíkar hliðar íslenskrar málstefnu," útskýrir Haraldur og nefnir ýmis dæmi um yrkisefni málþinganna, s.s. lagalega stöðu íslenskunnar, móðurmálskennslu, stöðu íslenskunnar í vísindum og fræðum auk málþings um stöðu íslenskunnar í fjölmiðlum. Haraldur segir yfirmarkmið málstefnunnar vera að íslenskan verði notuð á öllum sviðum samfélagsins og ekkert svið þess fyrirfinnist þar sem ekki er hægt að nota íslensku. „Um leið og það gerist er staða tungumálsins mun veikari," segir Haraldur og nefnir máli sínu til stuðnings hve mörg tungumál nú er farið að tala á Íslandi, málumhverfið sé orðið mun fjölbreyttara. „Auðvitað gæti sú staða komið upp að þeir sem hingað flytjast og tala ekki íslensku læri ekki íslensku heldur noti ensku. Þetta er staða sem við viljum forðast því þarna verður til hluti samfélagsins sem notar ekki íslensku," segir Haraldur og bætir því við að til að forðast slíkar aðstæður þurfi að styrkja íslenskukennslu til muna og skapa nægt framboð á hæfum kennurum. Íslenska sem annað mál sérstök fræðigrein „Það að kenna íslensku sem annað mál er alveg sérstök kennslugrein og í raun sérstök fræðigrein og háskólar á Íslandi hafa ekkert sinnt henni. Þetta þarf að breytast," segir Haraldur og nefnir sem dæmi að í námskrár íslenskra háskóla vanti alveg stuttar námsbrautir þar sem kennd er hagnýt íslenska sem geri erlendum nemendum kleift að fóta sig í íslensku háskólanámi án þess að þeir stefni á að verða beinlínis íslenskufræðingar. Haraldur spyr hvort íslensk stjórnvöld standi nægilega vel að því að bjóða innflytjendum upp á kennslu í íslensku. „Skapast ekki í raun hálfgerð skólaskylda hérna ef íslenskt samfélag leggur þá skyldu á herðar þeirra, sem sækjast eftir ríkisborgararétti og dvalarleyfi, að þeir tali íslensku? Er þá ekki skylda samfélagsins að veita þessa kennslu endurgjaldslaust?" spyr Haraldur enn fremur og nefnir í framhaldi af því hvort slík kennsla ætti að vera hluti af kjarasamningum. Viðhorf gagnvart íslensku með hreim Viðhorf Íslendinga gagnvart íslensku sem töluð er með erlendum hreim er annað viðfangsefni málþingsins og hvort það yrði til hagsbóta fyrir samfélagið að gera íslensku með hreim sýnilegri. „Íslendingar hafa oft ekki þolinmæði til að hlusta á bjagaða íslensku og skipta þá umsvifalaust yfir í ensku. Þetta er auðvitað ekki nógu gott og þarna þarf að auka fjölmenningarlega vitund Íslendinga," segir Haraldur og veltir því upp hvort ráðlegt væri að gera íslensku sem töluð er með hreim sýnilegri, t.d. í ljósvakamiðlum. Málþingið fer fram í Alþjóðahúsi á Hverfisgötu 18 kl. 14 - 17 á föstudaginn.
Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Erlent Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Innlent Fleiri fréttir Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Sjá meira