Innlent

Forseti Verzló segir hæfni skipta meira máli en kyn

Hafsteinn Gunnar Hauksson forseti NFVÍ er hér til hægri á myndinni.
Hafsteinn Gunnar Hauksson forseti NFVÍ er hér til hægri á myndinni. MYND/Arnþór

Hafsteinn Gunnar Hauksson nýkjörinn forseti nemendafélags Verzlunarskóla Íslands segir vissulega rétt hjá Kvenréttindafélagi Íslands að hlutfall kvenna við skólann birtist ekki í stjórn nemendafélagsins. Það segi hinsvegar ekki alla söguna.

Kvennréttindafélag Íslands hefur veitt því athygli að nýkjörin stjórn nemendafélags skólans sé eingöngu skipuð körlum og af þeim 20 frambjóðendum til stjórnar nemendafélagsins voru aðeins 3 konur. Félagið skorar á nemendur að hafa kynjasjónarmið að leiðarljósi í félagsstarfi sínu innan veggja skólans.

Hafsteinn bendir hinsvegar á að í nefndarkerfi nemendafélagsins séu fleiri stelpur en strákar og hann segir stelpur virka þáttakendur í félagslífinu. „Það sem skiptir hinsvegar mestu máli er ekki hvers kyns einstaklingarnir eru heldur hversu hæfir þeir eru til þess að gegna starfi sínu," segir Hafsteinn sem hefur ekki miklar áhyggjur þó stelpurnar vanti í stjórn félagsins.

„Allir þeir sem voru kjörnir í stjórn nemendafélagsins eru hugmyndaríkir og hæfir einstaklingar, það er það sem skiptir mestu máli."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×