Rúmlega 3000 lóðir óseldar 9. desember 2008 19:02
Vel á þriðja þúsund lóðir standa tilbúnar fyrir gröfurnar á höfuðborgarsvæðinu en seljast ekki. Reykvískur læknir leggur til að sveitarfélögin snúi vörn í sókn og leigi lóðirnar út til matjurtaræktunar. Útlit er fyrir að sex hálfköruð hverfi standi á höfuðborgarsvæðinu næstu árin. Þótt fáir leggi í að byrja að byggja þessa dagana er svartsýnin ekki meiri en svo að þegar fréttastofu bar að garði í Urriðaholti í Garðabæ í gær var þar rafvirki á ferð að tengja ljósastaura. Þó eru hverfandi líkur á að margir munu njóta þeirrar birtu í nánustu framtíð. Fréttastofa hefur undanfarið kannað stöðu lóðamála á höfuðborgarsvæðinu. Ýmsum hverfum hefur verið slegið á frest um óákveðinn tíma en í Urriðaholtinu eru lóðir undir um 150 íbúðir óseldar. Á Völlum sjö í Hafnarfirði var lóðum undir 440 íbúðir úthlutað í apríl. Búið er að skila næstum öllum. Tvö hverfi eru í uppbyggingu í Mosfellsbæ. Leirvogstunga slapp næstum fyrir horn kreppunnar, þar er búið að selja um 300 af 400 lóðum, og flutt er inn í um 50 hús. Umsjónarmaður hverfisins segist hafa fengið erfið símtöl frá fólki í vandræðum sem vill losna við lóðirnar. Sumar hefur tekist að selja. Hann segir húsbyggjendaandann nokkuð breyttan hér handan við góðærið. Í Kópavogi verður Vatnsendahlíðin vart fullbyggð á næstunni því þar eru lóðir undir um 650 íbúðir óseldar. Í Reykjavík hefur Úlfarsárdalurinn og Reynisvatnsásinn orðið harðast úti í fjármálafrostinu. Hver einasta lóð sem skilað hefur verið í Reykjavík á þessu ári eru á þessum bletti, lóðir undir rösklega 300 íbúðir. En þetta svæði gæti verið kjörið land að leigja undir matjurtarækt borgarbúa að mati læknis í borginni sem vill að raskaðar lóðir séu nýttar. Til að kanna áhugann hvetur Lilja S. Jónsdóttir, læknir og áhugamaður um lýðheilsu. þá sem vilja skika undir kál og hollmeti til að senda sér tölvupóst á bloggsíðu sinni. Hvur veit þá nema ljósastaurarnir geti nýst við uppskeruna í hauströkkrinu.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira