Krefjast þess að ráðherra afturkalli hvalveiðiheimild 19. maí 2008 22:15
Starfsmenn og eigendur hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar segja að með ákvörðun sinni um að leyfa á ný hrefnuveiðar í atvinnuskyni sé stóriðju í ferðaþjónustu ógnað. Í yfirlýsingu sem þeir senda frá sér í kvöld krefjast hvalaskoðunarmenn að Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra og ríkisstjórnin öll endurskoði ákvörðun sína „áður en skaðinn verður óafturkræfur," eins og segir í tilkynningunni. „Samtök Ferðaþjónustunnar og Samtök Hvalaskoðunarfyrirtækja hafa undanfarið fundað með sjávarútvegsráðherra, utanríkisráðherra og ráðherra ferðamála og hafa þau öll lýst áhuga sínum á að gæta hagsmuna hvalaskoðunarfyrirtækja og ferðaþjónustunnar. Þau orð eru marklítil nú þegar ljóst er að veiðar hafa verið heimilaðar á 40 hrefnum sem hefjast eiga í Faxaflóa þriðjudaginn 20. maí," segir meðal annars í tilkynningunni. Þá er sagt að hrefnan sé helsta söluvara í hvalaskoðunarferðum frá Reykjavík ásamt höfrungum, hnísum og hnúfubökum sem einnig sjáist í sumum ferðanna. „Talsmaður hrefnuveiðimanna fullyrðir að 80 til 90% hrefnanna verði veiddar á Faxaflóa sem mundi stofna okkar fyrirtæki í stórhættu. Á síðasta ári tókum við á móti rúmlega 50.000 ferðamönnum og erum þar með í hópi stærstu ferþajónustuaðila landsins. Þessi ákvörðun sjávarútvegsráðherra er mikið reiðarslag fyrir okkar starfsemi," segja Eldingarmenn. Þeir segja að rannsóknir sem fyrirtækið hefur framkvæmt á hrefnum og höfrungum í Faxaflóa hafi leitt í ljós að sömu dýrin eru að sjást endurtekið á svæðinu og gefur það til kynna að um sé að ræða tiltölulega fá dýr sem koma ár eftir ár. Mikilvægt sé að halda þessum rannsóknum á lifandi hvölum áfram. „Fullyrðing talsmanns hrefnuveiðimanna um að aldrei hafi verið líflegra en nú í Faxaflóa er dæmi um rangfærslur og áróður hrefnuveiðimanna þar sem sannleikurinn er sá að lífið í Flóanum er með minnsta móti og áberandi lítið af hrefnu. Það er líka í samræmi við niðurstöður úr hvalatalningu Hafró síðastliðið sumar sem af einhverjum ástæðum hefur ekki verið haldið hátt á lofti," segir í yfirlýsingunni. „Fulltrúi sjávarútvegsráðuneytisins hefur nú beðið stjórnanda Eldingar Hvalaskoðunar í Reykjavík um upplýsingar um áætlaðar skoðunarferðir í sumar til að geta veitt í ,,góðri samvinnu við fyrirtækið". Það þykir okkur ógnvekjandi og bendir óneitanlega til að ætlunin sé að sæta lagi og veiða á milli hvalaskoðunarferða. Við viljum undirstrika að án hrefnanna í Faxaflóa er engin hvalaskoðun frá Reykjavík og starfsemi okkar leggst af." Að lokum segir í yfirlýsingunni: „Það er einlæg skilyrðislaus krafa eigenda og starfsmanna Eldingar Hvalaskoðunar í Reykjavík að sjávarútvegsráðherra og ríkisstjórn endurskoði ákvörðun sína áður en skaðinn verður óafturkræfur."
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira