Framferði Ísraela óafsakanlegt 3. mars 2008 15:26
Framferði Ísraela á Gasasvæðinu er óafsakanlegt og ríkisstjórnin fordæmir það. Þetta sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum í dag. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri - grænna, kvaddi sér hljóðs við upphaf fyrirspurnartíma og benti á að á annað hundrað manns hefðu verið drepnir á síðustu fimm dögum á Gasasvæðinu, þar á meðal tugir barna. Ekki væri vafi á því að Gefnarsáttmálinn hefði verið margbrotinn og það eitt ætti að duga til að íslensk stjórnvöld tækju við sér. Ísraelar hefðu haldið íbúum Gasa innikróuðum í níu mánuði og þar vantaði matvæli og lyf og rafmagn. Spurði hann hvernig ríkisstjórnin hygðist bregðast við og benti á að félagið Ísland-Palestína hefði krafist þess að Ísland sliti stjórnmálasambandi við Ísrael Geir H. Haarde sagði ástandið á svæðinu hörmulegt og framferði Ísraela óafsakanlegt. Það þyrfti þó að hafa í huga að það sem hefði orsakað ástandið að því er Ísraelar segðu væru eldfalugaárásir frá Gasasvæðinu. Sagði hann ekkert hafa verið rætt um það á vettvangi ríkisstjórnarinnar að slíta stjórnmálasambandi við Ísraela þrátt fyrir að þetta gamla vinaríki Íslands hefði leiðst út í ógöngur sem íslensk stjórnvöld fordæmdu. Þá sagði hann það fráleitt að stilla því þannig upp að Íslendingar gætu stöðvað átökin, málið væri flóknara en svo. Íhugi að slíta stjórnmálasambandi Ögmundur sagði að stjórnvöld ættu að íhuga þann kost að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael því hér væru á ferðinni mjög alvarleg mannréttindabrot. Þá sagði hann svör ráðherra gamalkunn, ísraelsk stjórnvöld væru fordæmd en minnt á að Palestínumenn bæru jafn þunga sök. Þeim málatilbúnaði hafnaði hann.
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Fleiri fréttir Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Sjá meira