Tilraun til bankaráns í Hafnarfirði 6. mars 2008 12:09 MYND/Stefán
Maður var handtekinn nú skömmu fyrir hádegi fyrir tilraun til bankaráns í útibúi Kaupþings í Firðinum í Hafnarfirði. Samkvæmt upplýsingum lögreglu virðist hann hafa verið einn á ferð og eftir því sem fréttastofa Vísis kemst næst var hann vopnaður hnífi og komst á brott með einhverja fjármuni. Hann var hins vegar gripinn skömmu síðar en nánari atvik liggja ekki fyrir. Að sögn Benedikts Sigurðssonar, talsmanns Kaupþings, var útibúinu lokað í kjölfar atviksins en óvíst er hvenær það verður opnað aftur. Starfsmannastjóri og framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs voru á leið á vettvang og segir Benedikt að ákveðið ferli fari í gang í tilvikum sem þessum. Hann býst við að þeim starfsmönnum útibúsins sem það vilja verði boðin áfallahjálp. Þetta er annað bankaránið á árinu en í byrjun febrúar réðst maður inn í útibú Glitnis við Lækjargötu vopnaður exi og komst á brott með um eina milljón króna. Hann var þó handtekinn skömmu síðar og viðurkenndi verknaðinn.
Mest lesið Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Innlent Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Innlent Mangione sagður ætla að játa Erlent Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Innlent Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Innlent Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Erlent Fleiri fréttir Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Ökumenn beðnir um að sýna aðgát vegna fýlsunga Frá hrifningu til vonbrigða: Svona upplifðu borgarbúar almyrkvann Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og Grafarvogi Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Forskot Já-hliðarinnar mælist minna ESB-málin í brennidepli og uppgjör eftir almyrkvann Einn handtekinn vegna gruns um líkamsárás og hótanir „Ég get ekki orða bundist“ Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Bein útsending: Málstofa og sýning um íslensk námsgögn Umferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vanalega Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Allir í skýjunum með almyrkvann: Himnanir opnuðust á hárréttum tíma Greiddu atkvæði gegn ráðningu nýs bæjarstjóra Fjallabyggðar Gott að vera temmilega tortrygginn Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þorgerður afþakkaði Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Sjá meira