Sakar Davíð um að grafa undan forystu Sjálfstæðisflokksins 11. desember 2008 18:37
Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, hefur með ummælum sínum grafið undan forystu Sjálfstæðisflokksins að mati þingmanns flokksins. Menntamálaráðherra segir eðlilegt að meintar hljóðupptökur af samræðum Davíðs við ráðherra ríkistjórnarinnar verði gerðar opinberar. Ekki er útilokað að til séu upptökur af símtölum Davíðs við ráðherra ríkisstjórnarinnar þar sem hann varar við bankahruninu. Þetta á Davíð hafa sagt viðskiptanefnd Alþingis í síðustu viku. Utanríkisráðherra hefur vísað því á bug að Davíð hafi varið við bankahruninu síðasta sumar. Forsætisráðherra segist ekki muna sérstaklega eftir því. Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis hefur ítrekað reynt að ná tali af Davíð Oddssyni bæði í gær og í dag en án árangurs. Þá hefur ennfremur verið óskað eftir afriti af meintum hljóðupptökum en þeirri beiðni hefur ekki verið svarað. Menntamálaráðherra segir nauðsynlegt að upptökurnar verði gerðar opinberar - séu þær á annað borð til - til að hægt sé að fá úr því skorið hvað sé rétt og rangt í þessu máli. Það þurfi að ríkja gegnsæi í þessu tilfelli eins og öllum tilvikum þannig að hægt sé að sjá heildarmyndina. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður sjálfstæðisflokks, segir að yfirlýsingar Davíðs undanfarnar vikur séu síst til þess fallnar að auka trúverðugleika Seðlabankans. Hún segist jafnframt telja það óeðlilegt að seðlbankastjóri tali með þessum hætti og hún telur að hann sé með þessum hætti að grafa undan forystu sjálfstæðisflokksins.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira