Innlent

Geir og Ingibjörg buðu í kökuveislu

Geir Haarde sker fyrstu sneiðina.
Geir Haarde sker fyrstu sneiðina.

Börnum á leikskólanum Tjarnarborg var boðið í ráðherrabústaðinn í dag til þess að fagna því að Þingvallastjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar fagnar í dag eins árs afmæli sínu.

Þann 23. maí í fyrra skrifuðu formenn flokkanna, Þau Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, undir stjórnarsáttmála á Þingvöllum eftir nokkurra daga stjórnarmyndunarviðræður. Ríkisstjórnin tók svo við 24. maí.

Krökkunum var boðið upp á forláta súkkulaðitertu í tilefni dagsins og líkaði vel við af myndinni hér að ofan að dæma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×