Varaformaður allsherjarnefndar vill lög gegn nektardansstöðum Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. ágúst 2008 15:21 Ágúst Ólafur Ágústsson
Það kemur fyllilega til greina að Alþingi setji lög til að koma í veg fyrir að nektardans sé stundaður hér á landi, að mati Ágústar Ólafs Ágústssonar, varaformanns allsherjarnefndar Alþingis. Borgarráð skoraði á Alþingi í morgun að setja slík lög. „Mér finnst þetta koma fyllilega til greina. Það er full ástæða til að taka svona áskorun frá borgarstjórn alvarlega. Þetta hlýtur þá að koma til umræðu annað hvort á vettvangi allsherjarnefndar eða þingsins," segir Ágúst. Hann segir að gæta þurfi að því að slík lög stangist ekki á við ákvæði í stjórnarskránni. „En öll löggjöf er ákveðið hagsmunamat og ég held að fáum ef nokkrum hugnist þessi starfsemi. Og ég held að löggjafin þurfi að vera vel með á nótunum þegar kemur að því að berjast gegn klámvæðingu og ofbeldi gegn konum," segir Ágúst Ágúst segist vonast til að þing og ekki síst dómsmálaráðuneytið taki áskorun borgarráðs til skoðunar. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sagðist vera staddur erlendis og hefði ekki séð þessa askorun þegar Vísir leitaði eftir viðbrögðum frá honum. Í tölvuskeyti til Vísis sagði hann að hann myndi að sjálfsögðu kynna sér efni hennar. Ekki náðist í Birgi Ármannsson, formann allsherjarnefndar Alþingis, við vinnslu þessarar fréttar.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Sjá meira