SkjárEinn heldur áfram og flestir starfsmenn endurráðnir 12. desember 2008 15:01 Sigríður Margrét Oddsdóttir.
Sjónvarpsstöðin SkjárEinn mun halda áfram útsendingum og flestir starfsmenn stöðvarinnar verða endurráðnir. Þessi ákvörðun er tekin að því gefnu að umsvif Ríkisútvarpins á auglýsingamarkaði verði takmörkuð en frumvarp þess efnis er nú til umfjöllunar á Alþingi. Öllum starfsmönnum stöðvarinnar var sagt upp á dögunum og var ráðgert að hætta útsendingum að óbreyttu eftir áramót. „Í frumvarpinu eru settar skorður við þátttöku RÚV á auglýsingamarkaði. Reikna má með að sú ráðstöfun efli tekjugrunn SkjásEins sem reiðir sig eingöngu á auglýsingatekjur," segir í tilkynningu frá SkjáEinum. „Á undanförnum vikum hefur verið endursamið við erlenda birgja SkjásEins og efniskostnaður lækkaður. Þessar tvær breytingar á rekstrargrunni stöðvarinnar, annars vegar lækkun efniskostnaðar og hins vegar sanngjarnara samkeppnisumhverfi á auglýsingamarkaði, gera það að verkum að forsvarsmenn SkjásEins hafa ákveðið að halda rekstrinum áfram," segir einnig. Sigríður Margrét Oddsdóttir sjónvarpsstjóri stöðvarinnar segir að mikilvæg skref hafi verið stigin með frumvarpi menntamálaráðherra í átt að sanngjarnara samkeppnisumhverfi. „Þar kemur fram skýr pólitískur vilji þó að vissulega hefðum við kosið að sjá meiri takmarkanir," segir Sigríður. „Það sem skiptir mestu máli er að vilji stjórnvalda er skýr. Starfshópur menntamálaráðherra og starfsfólk ráðuneytisins hafa trú á því að í nýju frumvarpi felist umtalsverðar takmarkanir á umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði," segir sjónvarpsstjórinn ennfremur og bætir við: „Við ætlum að treysta stjórnvöldum fyrir því að þetta sé rétt mat, ekki síst þar sem í frumvarpinu er ákvæði um endurskoðun fyrir 1. júlí á næsta ári. Það þýðir að tækifæri verður til þess að bregðast við ef markmiði frumvarpsins verður ekki náð, þ.e. að veita einkareknu stöðvunum aukið svigrúm."
Mest lesið Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Innlent Danmörk „pínulítið land“ með „pínulítinn her“ Erlent Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Innlent „Hef hvergi hallað réttu máli“ Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Innlent Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Innlent „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Innlent Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Erlent Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Borgarstjóri fór með rangt mál Gagnrýnin hugsun skipti máli Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Fjórir slást um oddvitasæti Viðreisnar Afsögn þingmanns, hótanir Trumps og í beinni frá Svíþjóð Mun hærri dánartíðni og meiri örorka hjá fyrrum vöggustofubörnum „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Vilja Laugardalshöll líkt og þeim var lofað Kviknaði í Svarta sauðnum í Þorlákshöfn Taldi ekki sérstaka nauðsyn á að hneppa Helga Bjart í varðhald Barbara sakar Sigríði um einelti og Valtý um gagnaleka „Vonbrigði“ Vill „nánast loka alfarið“ á útlendinga utan Evrópu Mjög óalgengt að þingmenn segi af sér Sjá meira