Lífið

Varaþingmaður varð kjaftstopp í fyrsta skipti á ævinni

Breki Logason skrifar
Guðný Hrund Karlsdóttir varaþingmaður varð ekki kjafstopp á þessum fundi Samfylkingarinnar.
Guðný Hrund Karlsdóttir varaþingmaður varð ekki kjafstopp á þessum fundi Samfylkingarinnar.

Guðný Hrund Karlsdóttir varaþingmaður Samfylkingarinnar hélt sína fyrstu ræðu í þinginu í gær. Hún vill þó frekar tala um ræðuleysi því hún varð alveg kjafstopp í umræðum um niðurstöður vorralls Hafrannsóknarstofnunnar.

„Ég fer þarna upp með punkta enda vön að flytja ræður en svo varð ég bara kjaftstopp en það hefur bara aldrei gerst áður," segir Guðný Hrund um uppákomuna sem hefur vakið þónokkra athygli í dag. Myndband af ræðu Guðnýjar síðan í gær hefur gengið manna á milli en Guðný segist hafa fengið töluverða samúð frá sínum kollegum í þinginu.

Hún tekur þessu þó létt en viðurkennir að uppákoman hafi verið nokkuð óþægileg. „Líka vegna þess að þetta var fyrsta ræðan mín í þinginu. Fjölskyldunni finnst hinsvegar gaman að því að sjá mig í fyrsta skipti kjafstopp og það í beinni útsendingu," segir Guðný sem fór ekki upp í pontu með skrifaða ræðu.

Í samtölum sínum við reyndari þingmenn í dag hefur Guðný komist að því að mælt er með að fólk fari með skrifaða ræðu upp í pontu í fyrsta skipti. Eftirá að hyggja hefði það líklega verið heppilegra. Hún segir einnig svekkjandi að hafa ekki komið sínum sjónarmiðum á framfæri því hún hafi mikla skoðun á málinu.

Guðný ætlar hinsvegar ekki að láta þessa uppákomu hafa áhrif á sig en í dag er síðasti dagur hennar sem varaþingmaður. „Ég er nú með tilbúna ræðu og ætla að skjóta mér inn í umræðu um Lánasjóð Íslenskra námsmanna núna jafnvel á eftir. Þetta er nú engin tímamótaræða en vonandi hjálpar mér að komast betur af stað, þar sem ég missteig mig svona í gær."

Þess má geta að Guðný er af þingmannaættum því farið hennar, Karl Steinar Guðnason, sat lengi þingi fyrir Alþýðuflokkinn, eða frá árinu 1979-1987.

Hérna er hægt er að sjá ræðu Guðnýjar síðan í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.