Íslendingar heiðursgestir á Bókamessunni í Frankfurt 27. febrúar 2008 16:14 Jurgen Boos, forststjóri Bókamessunnar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra.
Stjórn bókakaupstefnunnar í Frankfurt (Frankfurter Buchmesse) hefur ákveðið að bjóða Íslandi að verða heiðursgestur á sýningunni sem haldin verður haustið 2011. Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi í byrjun september í fyrra að sækjast eftir því að Ísland hlyti þennan sess. „Ísland verður fyrst Norðurlanda til að skipa þennan sess í Frankfurt," segir í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. „Menntamálaráðherra, ásamt sendiherra Íslands í Þýskalandi og fleirum, sótti síðustu bókasýningu heim og átti þá viðræður við forstjóra og annað starfsfólk kaupstefnunnar. Hefur þeim viðræðum verið fylgt eftir síðan og það hefur orðið til þess að Ísland varð fyrir valinu, en Finnar sóttust einnig eftir því að verða heiðursgestir sýningarinnar árið 2011. Með ákvörðun kaupstefnunnar opnast einstakt tækifæri til útrásar fyrir íslenskar bókmenntir og menningu, ekki bara á hinn þýska markað heldur einnig á aþjóðlegan bókamarkað. Bókakaupstefnan í Frankfurt er sú stærsta í heimi. Hún á rætur allt aftur á 15. öld en hefur smám saman tekið á sig núverandi mynd eftir að hún var endurreist árið 1949." „Á síðustu stefnu, sem haldin var um miðjan október í fyrra, voru sýnendur alls 7450, þar af rösklega 4000 frá löndum utan Þýskalands. Alls voru þátttakendur frá 108 löndum. Sýningarhúsnæðið var alls 172 þúsund fermetrar, kynntir voru tæplega 400 þúsund nýir bókatitlar og um 280 þúsund gestir komu á kaupstefnuna. Íslendingar hafa sótt sýninguna allt frá byrjun sjöunda áratugarins til að kynna bækur sínar og fræðast um bókamarkað heimsins." „Eitt land eða málsvæði er jafnan heiðursgestur sýningarinnar og var því kerfi komið á árið 1988. Það þýðir að viðkomand land notar kaupstefnuna til að kynna rækilega bækur, höfunda og menningu sína í heild. Sú kynning fer fram bæði á sérstöku sýningarsvæði á kaupstefnunni sjálfri, en ekki síður í aðdraganda hennar, þar sem margvíslegar þýðingar, höfundar- og menningarkynningar eru undirbúnar og fylgir því feiknalegur áhugi í þýskum fjölmiðlum. En áhuginn nær víðar þar sem flest erlend forlög reyna að sýna bækur frá viðkomandi svæði eða afla sér upplýsinga um þær og gildir sama um umboðsmenn. Þegar vel er á málum haldið hefur þetta haft í för með sér að bækur frá viðkomandi svæði eru þýddar á fjölmargar tungur, auk þess sem menningarviðburðir þaðan setja svip sinn á þýskan menningarvettvang svo um munar. Íslensk stjórnvöld, í samvinnu við rithöfunda og útgefendur og aðra sem að málinu koma, hafa hugsað sér að nota þetta einstaka tækifæri sem allra best til að styrkja þýðingar á íslenskum bókmenntum, jafnt klassískum sem samtímalegum. Ennfremur er hugmyndin að standa fyrir öflugri menningardagskrá í tengslum við sýninguna og nota hana jafnframt sem stökkpall gagnvart öðrum málsvæðum. Þýðingar á íslenskum bókmenntum hafa færst mjög í vöxt á undanförnum árum og með þessu stærsta útrásarverkefni íslenskra bókmennta nokkru sinni gefst einstakt tækifæri til að fylgja því eftir. Skipuð hefur verið verkefnisstjórn til að halda utan um þetta verkefni með fulltrúum frá Bókmenntasjóði, menntamálaráðuneyti og utanríkisráðuneyti og verður Steingrímur Sigurgeirsson aðstoðarmaður menntamálaráðherra formaður hennar. Þá hefur verið samið við Halldór Guðmundsson um að taka að sér stjórn verkefnisins. Halldór hefur margoft sótt bókasýninguna í Frankfurt heim, fyrst sem útgefandi og nú á síðustu árum sem höfundur, en bók hans um Halldór Laxness var nýlega gefin út í Þýskalandi. Ennfremur er ætlunin að koma á fót öflugum samráðshópi þar sem rithöfundar, útgefendur og fulltrúar fleiri listgreina geta lagt sitt til verkefnisins." Sjá einnig: Áhrifa kaupstefnunnar í Frankfurt gætir langt út fyrir bókmenntirnar
Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fleiri fréttir Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Sjá meira