Enginn "menntaskólabragur" á leikritinu í MH 27. febrúar 2008 15:33 Úr sýningunni E1NTAK.
Næstkomandi föstudag, þann 29. febrúar mun leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð frumsýna leikritið E1NTAK. Viðfangsefnið er einstaklingurinn andspænis veröldinni og hvort tilvera okkar hafi eitthvert vægi hér á jörðinni? Hlaupið er í gegnum lífskeið manneskju sem reynir að fóta sig í fallvöltum veruleikanum. Notast er við svokallaða „Devised"- eða samsetta aðferð sem felur í sér að í upphafi ferlisins er hvorki handrit né hlutverk, einungis hugmyndaflug leikara og leikstjóra. Allt er leyfilegt og reynt er að víkka sjóndeildarhring leikaranna á leiklistinni. Með þessu kynnist hin ungi leikhópur nýrri aðferð við nálgun viðfangsefnisins. Þetta reynir virkilega á hópinn sem heild og snýst um svo miklu meira en að læra línur og taka nótur. Skólinn afhenti leikfélaginu rými í skólanum sem kallast Undirheimar. Þar sem áður var rykfallin geymsla er nú hrátt og flott leikrými. Þessi svokallaði „black box" er eitt af fáum á landinu og býður upp á marga möguleika. Nálægðin er svo mikil að áhorfandinn upplifir sig sem hluti af verkinu. Leikstjórar verksins eru Stefán Hallur Stefánsson og Vignir Rafn Valþórsson. Þrátt fyrir ungan leikaldur hafa þeir nú þegar leikið í ýmsum verkum í leikhúsum landsins og auk þess talsvert komið fram í sjónvarpi og bíómyndum. Þeir eru hluti af sjálfstæðum leikhóp sem að nefnist Vér Morðingjar. Þessi leikhópur samanstendur af ungum leikurum sem langar til að prófa nýja hluti og leita í áður ókannaðar áttir; sjá eitthvað nýtt gerast (ver-mordingjar.blog.is). Í gegnum tíðina hafa ótal margir þjóðþekktir einstaklingar stigið sín fyrstu spor í leikritum leikfélags MH. Þar má nefna Karl Ágúst Úlfsson, Benedikt Erlingsson, Halldóru Geirharðsdóttur, Ilmi Kristjánsdóttur, Björn Thors og fleiri. Óhætt er að segja að einhverjir í núverandi leikhópi eigi eftir að bætast við þennan lista og láta mikið að sér kveða í framtíðinni. Þetta er sérstök sýning að því leytinu til að vera unnin frá grunni af nemendum og hún byggist einungis á sköpunargleði, metnaði og leikgleði þessa unga og efnilega leikhóps. Það er enginn „menntaskólabragur" á þessu kraftmikla leikriti sem að vert er að hafa auga með.Sýningar eru á eftirtöldum dögum: Frumsýning - 29.feb kl.19:00 2.Sýning - 3.mars kl.19:00 3.Sýning - 4.mars kl.19:00 4.Sýning - 5.mars kl.19:00 5.Sýning - 7.mars kl.19:00 6.Sýning - 8.mars kl.17:00 7.Sýning - 10.mars kl.19:00 8.Sýning - 11.mars kl.19:00 9.Sýning - 12.mars kl.19:00 10.Sýning - 14.mars kl.19:00Miðaverð er 1000 kr. fyrir meðlimi nemendafélags skólans og börn yngri en 12 ára, fyrir aðra kostar 1500 kr.Miðasölusíminn er 846 4890 og 865 1254. Einnig er hægt að panta miða og fá nánari upplýsingar á leikfelag@nfmh.is.
Mest lesið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Fleiri fréttir Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Sjá meira