Engin sjóræningjaskip hafa sést á Reykjaneshrygg 23. júní 2008 10:53 Landhelgisgæslan hefur haft afskipti af sjóræningjaskipum á Reykjaneshrygg en ekki í ár. MYND/Landhelgisgæslan
Ekki hefur sést til svokallaðra sjóræningjaskipa á Reykjaneshrygg við eftirlit Landhelgisgæslunnar með karfaveiðum þar að undanförnu. Hins vegar hefur Gæslan sent fjölda tilkynninga til aðildarríkja Norðuaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins þar sem gerða eru athugasemdir vegna skorts á tilkynningum um aflamagn þegar komið er inn á veiðisvæði og umskipun úti á hafi. Fram kemur í tilkynningu Landhelgisgæslunnar að eftirlitið hafi farið fram bæði innan og utan fiskveiðilögsögu Íslands. Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðið, sem stjórnar veiðum á svæðinu, hefur hert reglur um veiðarnar bæði hvað varðar aflamagn, veiðisvæði og tímabil veiðanna á mismunandi svæðum. Litið er á það sem alvarlegt brot ef upplýsingar um veiðar skipa aðildarríkja eru ekki aðgengilegar í gagnagrunni fiskveiðráðsins og er þá veiðileyfi viðkomandi skips ekki í gildi. Þá segir Gæslan að nokkrar aðildarþjóðir ráðsins hafa komið þessum málum í lag í kjölfar ábendinga en aðrar ekki. „Veiðar á fiskveiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins, bæði á úthafinu og innan lögsögu, án gilds veiðileyfis eru ólöglegar og samkvæmt íslenskum lögum er bannað að þjónusta skip sem hafa gerst sek um brot á reglum fiskveiðiráðsins. Íslensk stjórnvöld hafa tilkynnt öllum aðildarríkjum ráðsins að skip þeirra sem uppfylla ekki skilyrði veiðanna sé óheimilt að koma í íslenskar hafnir. Landhelgisgæslan hefur því synjað nokkrum skipum aðildarríkjanna um leyfi til hafnarkomu á Íslandi," segir í tilkynningunni. Um sjóræningjaskipin, það er skip ríkja sem ekki eiga aðild að fiskveiðiráðinu og veiða í leyfisleysi á yfirráðasvæði þess, segir Gæslan að ráðstafanir gagnvart þeim líti út fyrir að hafa skilað tilætluðum árangri.
Mest lesið Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Fleiri fréttir Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Sjá meira