Fengu einkaþotu á „einstöku kynningarverði" 8. apríl 2008 15:16 Geir og Ingibjörg Sólrún koma úr flugi frá Búkarest. MYND/Stefán
Kostnaður vegna leigu á einkaflugvél vegna ferðar forsætisráðherra og utanríkisráðherra á leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í síðustu viku nam 4,2 milljónum króna. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu hefði heildarkostnaður vegna ferðar ráðherranna og embættismanna orðið um 3,7 milljónir ef flogið hefði verið með áætlunarflugi. Flogið var með Dornier 328-310ER. „IceJet bauð leigu á þotunni á einstöku kynningarverði, 4,2 millj. króna. Með því að nýta þann kost var hægt að leggja af stað 2. apríl og komast heim þann 4. Þá spöruðust um 5 vinnudagar alls sem reikna má á u.þ.b. 200 þúsund kr. og dagpeningar upp á um 100 þúsund kr. Þetta fyrirkomulag gerði mögulegt að nýta mánudaginn 1. apríl til fundahalda, m.a. funduðu forsætisráðherra og utanríkisráðherra með bankastjórn Seðlabankans síðdegis 1. apríl. Í vélinni eru 14 sæti og var ákveðið að bjóða fjölmiðlum þau fjögur sæti sem ónýtt voru. Það þáðu þrír fjölmiðlar: Fréttablaðið, Stöð 2 og Morgunblaðið. RÚV sendi fréttamann til fundarins frá London," segir í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Þá segir í tilkynningunni að flogið hafi verið með 19 sæta flugvél af gerðinni Jetstream 32 frá flugfélaginu Erni, TF ORC, til Kiruna í Svíþjóð í gær. Í þá för fóru Geir H. Haarde forsætisráðherra og Björgvin G. Sigurðsson ásamt fylgdarliði. Segir ráðuneytið að með þessu fyrirkomulagi sparist 1-2 ferðadagar. Kostnaður við leiguna sé um 2,7 milljónir en hefði verið um 1100 þúsund krónur með áætlunarflugi. Hótelkostnaður sem ekki þurfi að greiða vegna styttri ferðar sé 180 þúsund krónur. Dagpeningar sem ekki greiðist vegna styttri ferðar nemi 187 þúsund krónum. Ávinning í vinnusparnaði vegna færri ferðadaga megi meta á 360 þúsund krónur. Að þessu samanlögðu sé áætlaður kostnaðarauki miðað við að fljúga í áætlunarflugi tæplega 850 þúsund krónur.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Sjá meira