Innlent

Menntamálaráðherra opnar ný mannvirki við Kópavogslaug

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnar ný sundlaugarmannvirki í Sundlaug Kópavogs við Borgarholtsbraut í dag. Hátíðardagskrá hefst klukkan þrjú með því að Skólahljómsveit Kópavogs leikur.

Þá blessar séra Ægir Sigurgeirsson mannvirkin og að loknum ávörpum Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra og Ómars Stefánssonar, formanns bæjarráðs, opnar menntamálaráðherra hin nýju sundlaugarmannvirki formlega. Loks er atriði frá Sunddeild Breiðabliks og svo er almenningi boðið að skoða mannvirkin til klukkan sex.

Á morgun, mánudaginn 12. maí, verður af þessu tilefni ókeypis í sund í Sundlaug Kópavogs og í Versölum, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Kópavogsbæ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×