Enski boltinn

Vinna hafin við nýja Anfield

Elvar Geir Magnússon skrifar
Nýi heimavöllur Liverpool verður hreint stórglæsilegur.
Nýi heimavöllur Liverpool verður hreint stórglæsilegur.

Vinna við nýjan heimavöll Liverpool er farin í gang. Völlurinn verður reistur í Stanley Park og mun hann rúma 60 þúsund manns í sæti með góðum möguleika á stækkun um 13 þúsund sæti til viðbótar.

Búið er að ganga frá öllum leyfum vegna þessara framkvæmda og er búist við að völlurinn verði tilbúinn til notkunar fyrir tímabilið 2011-12.

Mikið hefur verið lagt í hönnunina á vellinum sem er hreint stórglæsilegur. Nýja Kop-stúkan mun rúma 18 þúsund manns og verður sérstaklega hönnuð með það í huga að magna upp hávaðann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×