Ekki fleiri leitað til Stígamóta í 13 ár 7. mars 2008 14:57 Guðrún Jónsdóttir er talskona Stígamóta. MYND/Auðunn Níelsson
Tuttugu og þrír einstaklingar leituðu hjálpar Stígamóta í fyrra vegna kláms og vændis og hafa þeir ekki verið fleiri í sögu samtakanna. Þá leituðu alls yfir 500 manns aðstoðar hjá samtökunum í fyrra. Skýrsla síðasta árs var kynnt í dag og þar kemur meðal annars fram að starfið á Stígamótum virðist vera að færast í sambærilegt horf og á byrjunarárunum fyrir tíma Neyðarmóttöku vegna nauðgana og Barnahúss. Þannig leituðu 527 einstaklingar til Stígamóta í fyrra vegna kynferðisofbeldis og er það fimmtungsaukning milli ára. Hafa þeir ekki verið fleiri frá árinu 1995. Þar af voru ný mál 277. Alls voru tekin nærri 1900 viðtöl við þá sem leituðu aðstoðar en fjöldi ofbeldismanna sem kom við sögu reyndist nærri 420 og hafa þeir ekki verið svo margir síðan árið 1994. Sem fyrr segir leituðu 23 einstaklingar hjálpar vegna kláms og vændis en árið áður voru ný klám- og vændismál 17. Ef vændismálin eru skoðuð sérstaklega voru ný mál á árinu 2007 12 en Stígamót segja mikilvægt að bæta við þeim 13 vændismálum sem fylgdu frá fyrri árum. „Þessar tölur sýna svo ekki verður um villst hin nánu tengsl á milli kláms og vændis annars vegar og annars kynferðisofbeldis hins vegar," segja Stígamót. Stígamót birta í fyrsta sinn upplýsingar um birtingarform nauðgana, en nauðgunarmál á borði samtakanna voru 118 í fyrra. Þar af var í ellefu tilvikum um lyfjanauðganir að ræða og sex tilvikum hópnauðganir og 14 tilvikum nauðganir í hjúskap eða sambúð. Í upplýsingum samtakanna kemur enn fremur fram að oftast á ofbeldið sér stað á sameiginlegu heimili þess sem er beittur ofbeldinu og ofbeldismanns, á heimili þess sem er beittur ofbeldinu eða á heimili ofbeldismanns, samtals í um 66 prósentum tilfella. Þá segja Stígamót að kærutíðni hafi verið meiri í fyrra en mörg undanfarin ár. Engu að síður voru 78 prósent mála ekki kærð, 13 prósent voru kærð og óvíst var með rúm átta prósent mála.
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Innlent Fleiri fréttir Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Sjá meira