Ágreiningur um hrefnuveiðar ekki stórmál 23. maí 2008 13:10 MYND/GVA
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir ágreining ríkisstjórnarflokkanna um hrefnuveiðar ekki það stórt mál að það sé spurning um hvort stjórnin sitji eða ekki. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag sem efnt var til að frumkvæði Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins. Guðni benti á að alvarleg væri að menn töluðu tungum tveim í ríkisstjórninni og vísaði þar til andstöðu ráðherra Samfylkingarinnar við þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra að heimila veiðar á 40 hrefnum. Sagði hann opinberan ágreining veikja málstað Íslands og að sjávarútvegsráðherra hefði verið lítillækkaður. Spurði Guðni forsætisráðherra hvort hann teysti Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríksiráðherra til þess að verja hagsmuni Íslands í hrefnuveiðimálinu eins og hún hefði sagst mundu gera á alþjóðavettvangi. Snýst um ólíkt hagsmunamat Forsætisráðherra sagði vissulega óvenjulegt að stjórnarflokkur gerði opinberan ágreining í máli á þennan hátt en þetta væri ekki stór mál. Hér væri ekki á ferðinni mál sem á Norðurlöndum héti kabinetmál og réði því hvort stjórn sæti eða ekki. Málið snerist um það hvernig fólk legði mat á málið út frá ólíkum hagsmunum. Ráðherra sagði að þeir Guðni ættu að standa saman um að ljúka þessum veiðum sem heimilaðar væru á grundvelli þingsályktunar sem samþykkt hefði verið árið 1999. Íslendingar væru með þessu að fylgja eftir rétti sínum til þess að nýta auðlindir sínar með sjálfbærum hætti. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði málið hafa gríðarleg áhrif á ímynd Íslands. Vísaði hún enn fremur til nýrrar skýrslu nefndar á vegum forsætisráðherra sem hefði sagt tvo veikleika skaða ímynd Íslands öðru fremur. Það væru fjármálakerfið og hvalveiðarnar. Taldi hún menn á kolrangri braut að fara í hvalveiðar nú. Um þingsályktunina frá árinu 1999 sagði Steinunn að 22 nýir þingmenn hefðu tekið sæti á Alþingi í fyrra og ef afstaða þingheims væri könnuð nú væri hún sannfærð um að hún væri önnur en árið 1999. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, sagði misráðið að hefja atvinnuveiðar á ný og benti á að það skipti miklu mál hvernig staðið væri að máli af þessu tagi. Þetta væri rugl í ríkisstjórninni og henni til háborinnar skammar. Þá gagnrýndi hann Samfylkinguna fyrir kattarþvott í málinu, fyrir að reyna að frýja sig ábyrgð í málinu en hún bæri fulla ábyrgð á því þar sem hún sæti í ríkisstjórn.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Fleiri fréttir Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Sjá meira