Eigið fé fólks í fasteignum brennur upp 15. desember 2008 05:00 Með hækkandi fasteignaverði á undanförnum árum hefur eigið fé fasteignaeigenda aukist mjög. Það hefur nú þegar gengið til baka að hluta. Fréttablaðið/Anton
Einn af hverjum tuttugu viðskiptavinum sem fengið hafa fasteignalán hjá bönkunum er með hærri lán áhvílandi en fasteignamat húsnæðisins. Það eru um 3.200 lán. Þetta kemur fram í tölum frá Fjármálaeftirlitinu. Bankarnir hafa veitt samtals tæplega 63 þúsund íbúðalán frá því að þeir hófu að lána almenningi fyrir fasteignum haustið 2004. Tölurnar eru frá miðju ári 2008. Talsverður meirihluti lántakenda, um 64 prósent, skuldaði þá undir 70 prósentum af andvirði fasteigna sinna. Á áttunda þúsund lántakenda hjá bönkunum eru með yfir 90 prósenta veðsetningu á eignum sínum. Það eru tæplega tólf prósent af útlánum bankanna. Meðaleftirstöðvar hvers einstaklings innan þessa hóps af lánunum eru um 11,5 milljónir króna. Með aukinni verðbólgu brennur eigið fé í fasteignum hratt upp. Þeir sem skulda hátt hlutfall lenda því í auknum mæli í því að skulda meira en andvirði fasteignanna. Fram kom í Fréttablaðinu í vikunni að veðsetningarhlutfall um sextán prósent lántakenda hjá Íbúðalánasjóði er yfir 80 prósentum. Það gerir rúmlega 7.700 einstaklingar. Sérfræðingar sem rætt var við segja slíkt ekki áhyggjuefni fyrir þá sem ætli sér að búa áfram í sínu húsnæði. Það takmarkar þó möguleika þeirra til að selja húsnæðið og flytja, og festir þá í nokkurs konar átthagafjötrum. Á undanförnum árum hefur verðmæti fasteigna hins vegar aukist gríðarlega á skömmum tíma. Því má segja að sú mikla hækkun sé að ganga til baka. Þeir sem komast í þá stöðu að skulda meira en andvirði fasteignarinnar, og verða annaðhvort að selja íbúðina eða ráða ekki við greiðslur af henni og missa fasteignina, geta hins vegar komist í vandræði. Þar sem ábyrgð á fasteignaláni fylgir einstaklingnum geta þeir þurft að borga með fasteigninni, eða flytja hluta láns yfir á aðra eign. Bankarnir hafa í um tíu prósentum tilvika selt lánsáhættuna til annars aðila, að því er fram kemur í upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu. Þetta á þó sjaldnar við í áhættusömustu tilvikunum, þar sem skuldir eru yfir 90 prósentum af verðmæti fasteigna. Þar hefur lánaáhættan verið seld í um sjö prósentum tilvika. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Sjá meira