Innlent

Mörg börn hafa orðið fyrir barðinu á netperrum

Stúlkur - allt að ellefu ára gamlar - hafa orðið fyrir barðinu á mönnum sem fá þær til kynferðisathafna á netinu í gegnum spjallrásir. Meiri þögn ríkir í kringum netnotkun drengja og koma því færri mál þeim tengdum til rannsóknar lögreglu.

Á annan tug mála hafa komið inn á borð kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á þeim tveimur árum sem deildin hefur starfað, sem tengjast kynferðislegum samskiptum fullorðinna við börn undir lögaldri á spjallrásum - aðallalega á msn-inu. Um er að ræða mjög unga einstaklinga.

Vefmyndavélar hafa aukið á vandann og hinir fullorðnu hafa fengið ung fórnarlömb sín til að vera með ýmsa kynferðislega tilburði, sem oft hefur haft alvarlegar afleiðingar. Málin tengjast í langflestum tilvikum stúlkum. Þó hafa komið upp nokkur er varða drengi og talið er þau séu fleiri - þau séu einungis betur falin, enda eru drengir ekki jafn viljugir að tala um sín mál og stúlkur og skömmin er meiri.

Inn á borð sálfræðinga hafa borist tilfelli þar sem drengir - oft með lélega sjálfsmynd - taka þá áhættu að senda kynferðislegar myndir af sér eða stofna jafnvel sjálfir til kynna við sér eldri karla, sem oftar en ekki sigla undir fölsku flaggi. Tölur sýna að fórnarlömb kynferðisofbeldis eru oftar stúlkur, drengir eru þó ekki afgerandi færri.

Þórarinn Viðar Hjaltason sálfræðingur segir að börn og ungmenni hafa hvorki aldur né þroska til að meta þann sem þau tala við á netinu.










Tengdar fréttir

Lögreglan rannsakar netperra

Lögreglan rannsakar nú mál þar sem karlmaður á meginlandi Evrópu hefur fengið íslenska stúlku undir lögaldri til að vera með kynferðislega tilburði fyrir framan vefmyndavél. Hættuleg msn-samskipti eru vaxandi vandamál, segir Björgvin Björgvinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×