Lífið

Naomi Campell útskrifuð af spítala

Naomi Campell.
Naomi Campell.

Ofurfyrirsætan Naomi Campell var útskrifuð af spítala í dag. Hún yfirgaf sjúkrahúsið eins og ofurfyrirsætu sæmir, í lúxusþyrlu.

Campell var lögð inn á spítalann á mánudag, þar sem hún þurfti að gangast undir neyðaraðgerð. Hún tók sér svo vikuna í að jafna sig.

Haft er eftir starfsfólki sjúkrahússins að dífan hafi verið með sannkallaða stjörnustæla og meðal annars heimtaði hún að sími inni á sjúkrastofunni yrði tekinn úr sambandi svo næði hennar yrði ekki raskað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.