Stærsti framhaldsskóli landsins einkarekinn 29. febrúar 2008 14:03 Menntafélagið hefur rekið Fjöltækniskólann frá árinu 2003. MYND/Hari
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirritaði í dag samning við Menntafélagið ehf. um að annast rekstur nýs framhaldsskóla er verður til við sameiningu Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskóla Íslands. Samningurinn er til fimm ára og gildir frá 1. júlí 2008. Fram kemur í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu að skólinn verði stærsti framhaldsskóli landsins með vel á þriðja þúsund nemendur, 250 starfsmenn og yfir 40 námsbrautir. Námsframboð í hinum nýja skóla verður óbreytt til að byrja með en samið verður um þróun námsframboðs í skólasamningi og komið á fót samráðshópi menntamálaráðuneytis og skólans um skólaþróun. Fjölga iðnnemum um tíu prósent á fimm árum Viðræður um sameiningu skólanna hafa staðið í á annað ár en markmið sameiningarinnar og verksamningsins er að sögn menntamálaráðuneytisins meðal annars að móta öflugan iðn- og starfsmenntaskóla, að fjölga nemendum sem velja sér iðn- eða starfsnám að loknu námi á almennri námsbraut um 10 prósent á samningstímanum, að draga úr brottfalli í iðn- og starfsnámi um 20 prósent á þremur árum og að jafna hlut kynjanna í einstaka námsgreinum. Þá á að gera iðn- og starfsmenntun eftirsóknarverða fyrir ungt fólk og skipa henni veglegan sess í samfélaginu. Enn fremur að fjölga möguleikum nemenda í iðn- og starfsmenntun til að leggja stund nám til stúdentsprófs og viðbótarnám til háskólaeininga. Menntafélagið ekki rekið í ágóðaskyniÖllum fastráðnum starfsmönnum Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskóla Íslands verður boðið starf við hinn nýja skóla og halda þeir réttindum sínum og kjörum óskertum. Nemendur sem stunda nám við Fjöltækniskóla Íslands og Iðnskólann í Reykjavík við gildistöku samningsins eiga rétt til að ljúka skilgreindu námi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.Menntafélagið er í eigu Samtaka iðnaðarins, Landssambands íslenskra útvegsmanna, Samorku, Sambands íslenskra kaupskipaútgerða og Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík. Félagið hefur rekið Fjöltækniskóla Íslands með samningi við menntamálaráðuneyti frá árinu 2003. „Menntafélagið er ekki rekið í ágóðaskyni heldur rennur allur hugsanlegur ágóði af rekstri þess beint í skólareksturinn. Samkvæmt samþykktum félagsins munu eigendur þess í upphafi leggja fram 100 milljónir króna til þróunarstarfs í skólanum," segir enn fremur í tilkynningu menntamálaráðuneytisins.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Sjá meira